Tilraunir, þrautir og útilega
(unga fólkið á siglingu)
Þrjár hornfirskar ungmennahljómsveitir taka nú þátt í Músiktilraunum um þessar mundir, þær eru Terra Firma sem er skipuð nemendum úr FAS, Antik sem er skipuð nemendum úr Heppuskóla og Mute sem er líka að mestu skipuð nemendum í Heppuskóla en trommari þeirra kemur úr FAS. Í gærkvöldi fór fram annað tilraunakvöldið af fimm og þar stigu Terra Firma og Antik á svið og valdi dómnefndin Antik áfram, hin hljómsveitin sem komst áfram var reykvísk og var hún valin af gestum. Í kvöld stíga Mutefélagar á svið. Allir þessir ungu tónlistarmenn hafa stundað nám í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og eru flestir þar enn í námi. 10 hljómsveitir keppa á kvöldi og komast tvær hljómsveitir áfram í úrslit í hvert sinn. Úrslitakvöldið fer fram föstudaginn 31.mars. Til lukku Antik.
Undankeppni Þrykkjuþrauta lauk á mánudagskvöldið í Þrykkjunni til úrslita keppa lið FAS sem er núverandi þrautameistarar og lið Þrykkjunnar sem í undankeppninni lagði lið Hafnarskóla, FAS lagði lið Heppuskóla. Úrslitakvöldið verður næsta mánudagskvöld.
Um síðustu helgi var haldin úti-innilega í íþróttahúsinu á vegum Þrykkjunnar. Þar komu krakkarnir með tjöld, svefnpoka og annan útilegubúnað, borðuðu pizzur, fóru í leiki og horfðu á myndir. Stóð úti- innilegan yfir frá föstudagskvöldi og fram á laugardagsmorgun. Starfsmenn og foreldrar voru krökkunum til halds og trausts á úti-innilegunni.





Skrifa athugasemd