Sinubruni í Óslandi
Allt slökkvilið Hornafjarðar og Almannavarnarnefnd voru send boð um sinubruna í Óslandi um 10 leitið í morgun, mikill bruni var á svæðinu beggja megin við Gónhól þar sem minnismerki sjómanna stendur. Þegar þessi frétt er skrifuð (11:04) er búið að hefta útbreiðslu sinubrunans beggja megin við Gónhól. Mikil mildi er að vindátt er mjög hagstæð og fer því reykurinn ekki yfir bæinn og fiskvinnslufyrirtækin sem eru í Óslandi. Mikil sina er einnig norðanmegin við Óslandsveginn en vegna vindáttar tókst að koma í veg fyrir að eldur bærist í þá sinu. Enn er ekki vitað um upptök eldsins en líkur benda til þess að hann hafi kviknað út frá logandi sígarettu. Óslandsvegurinn er vinsæll og fjölfarinn rúntur til að sjá yfir innsiglinguna til Hafnar.
Að sögn Össurar Imslands deildarstjóra á Tækni og umhverfissviði Sveitarfélagsins Hornafjarðar þá er víða mikil hætta á sinubruna í Sveitarfélaginu og ber að fara varlega með eld í nánd sinu. Bannað er með öllu að brenna sinu án tilskilinna leyfa.





Skrifa athugasemd