Sveitarfélagið Hornafjörður - Mars
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
Sinubruni í Óslandi
      <description>Allt slökkvilið Hornafjarðar og Almannavarnarnefnd voru send boð um sinubruna í Óslandi um 10 leitið í morgun, mikill bruni var á svæðinu beggja megin við Gónhól þar sem minnismerki sjómanna stendur. Þegar þessi frétt er skrifuð (11:04) er búið að hefta útbreiðslu sinubrunans beggja megin við Gónhól. Mikil mildi er að vindátt er mjög hagstæð og fer því reykurinn ekki yfir bæinn og fiskvinnslufyrirtækin sem eru í Óslandi. Mikil sina er einnig norðanmegin við Óslandsveginn en vegna vindáttar tókst að koma í veg fyrir að eldur bærist í þá sinu. Enn er ekki vitað um upptök eldsins en líkur benda til þess að hann hafi kviknað út frá logandi sígarettu. Óslandsvegurinn er vinsæll og fjölfarinn rúntur til að sjá yfir innsiglinguna til Hafnar.</description>
Ýmsar sögupersónur á ferðinni í Hafnarskóla
      <description>Í Hafnaskóla eru ýmsar sögupersónur á ferðinni þessa dagana. Þar eru Lína Langsokkur, Emil í Kattholti, Kalli á þakinu, Ronja Ræningjadóttir, ásamt óteljandi fleiri sögupersónum úr bókum Astridar Lindgren.  Ástæðan er sú að í kvöld verður árshátíð skólans sem að þessu sinni er þannig upp byggð að foreldrum og öðrum aðstandendum er boðið á leiksýningu í Sindrabæ.  Tvær sýningar verða í kvöld, sú fyrri kl. 17:00 en sú síðari kl. 19:00.  Aðstandendum 4. og 5. bekkjar er beint á fyrri sýninguna en 6. og 7. bekkjar á þá síðari.  Nemendur og starfsfólk hafa lagt mikinn metnað í þessa sýningu og á morgun verður nemendum Nesjaskóla og Krakkakots boðið á sýningar.  Aðgangseyrir er í hófi 500 kr á mann og aldrei meira en 1000 kr á fjölskyldu.  Veitingasala verður í Sindrabæ fyrir sýningu þar sem boðið er upp á safa og smákökur, bakaðar af nemendum.   Hér koma nokkrar myndir af leikendum en sviðið verður leyndarmál fram yfir frumsýningu.</description>
Framsóknarmenn í Hornafirði samþykkja lista
      <alt>Framsókn</alt>
Framsóknarmenn leggja fram lista
      <description>Framsóknarfélag Austur-Skaftfellinga boðar til fundar í kvöld, miðvikudaginn 29.mars kl. 20:00 í Kaupfélagshúsinu, Hafnarbraut 2. Á fundinum verða lagðar fram tillögur uppstillinganefndar að framboðslista framsóknarmanna og stuðningmanna þeirra fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 27.maí n.k. Vel hefur gengið að fá fólk til að taka sæti á listanum og er greinilegt að mikill hugur er í frambjóðendum, enda leggja framsóknarmenn og stuðningmenn þeirra störf síðustu fjögurra ára óhræddir í dóm kjósenda.</description>
      <alt>Framsókn</alt>
Kynna svæðið á Ferðatorgi 2006
      <description>Dagana 31.mars til 2.apríl verður sýningin Ferðatorg 2006. Þar  kynna öll átta ferðamálasamtök landshlutanna sinn landshluta, sitt svæði og þá þjónustu sem þar er í boði.  Kynningu á ferðaþjónustu í Hornafirði og öllu sem henni tilheyrir munu þau Guðrún Jónsdóttir og Guðbrandur Jóhannsson sjá um. Við verðum með sameiginlegan sýninga- og kynningabás með Ferðamálasamtökum Austurlands sagði Guðrún og erum á fullu að undirbúa þetta. Þetta er allt nýtt fyrir mér en Guðbrandur er þaulvanur þessu öllu. Sýningin byrjar á föstudaginn og er eingöngu fyrir ferðaheildsala þann dag en á laugardag og sunnudag verður hún öllum opin. Ferðatorgið er að þessu sinni tengt sýningunni Matur 2006 sem er mjög áhugaverð sýning. Búist er við mikilli aðsókn á sýningarnar.</description>
Leggja afrakstur uppstillingarnefndar fyrir félagsmenn
      <description>Félagsfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði verður haldinn á Kaffi Horninu kl. 20:00 fimmtudaginn 30. mars. Efni fundarins verður að leggja fram framboðslista Samfylkingarinnar á Hornafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 27. maí. Vösk sveit fólks hefur unnið að því undanfarna daga og vikur að stilla upp öflugum lista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Nú er komið að því að leggja afrakstur uppstillingarnefndar fyrir félagsmenn.</description>
Nýta hluta morgunkaffitímans til gönguferðar í Óslandinu
      <description>Allt fyrir heilsuna og hreystina sagði starfsfólkið í fiskvinnslunni Bestfiski sem nýtir hluta morgunkaffitímans til að gönguferðar í Óslandinu. Margir vinnustaðir eru með heilsuátak fyrir starfsfólk sitt og þykir sýna góðan árangur. Við erum að byrja á þessu og vonandi koma sem flestir af starfsliðinu með okkur sagði Sívar Árni Scheving einn eiganda og framkvæmdastjóri Bestfisks. Þetta er hörkuduglegt starfsfólk sem hér er og ég vona að sem flestir verði með í Óslandsgöngunni okkar, það er bara að drífa sig á stað og finna hvað þetta er hressandi.</description>
Þrír aðilar buðu í dýpkun hafnarinnar
      <description>Búið er að opna og fara yfir þau tilboð sem bárust í dýpkun innan hafnar í Hornafjarðarhöfn. Þrír aðilar buðu í verkið. Lægstir voru Gáma og tækjaleiga Austurlands, Reyðarfirði en þeir hafa verið að dýpka á grynnslunum undanfarið, Þeir buðu kr. 41.900.000,-  Hornfirsku fyrirtækin Vélsmiðjan Foss og Rósaberg buðu saman kr. 68.860.000,- og gerðu auk þess frávikstilboð að upphæð kr. 94.720.000,- sem fólst í því að meiru magni að efni yrði dælt eða 190.000 rúmmetrum í stað 120.000 rúmmetra. Björgun í Reykjavík sem einnig eins og Gáma og tækjaleiga Austurlands hefur dælt upp úr grynnslunum buðu kr. 72.165.000,- og gerður þeir einnig frávikstilboð að upphæð kr. 58.065.000,- sem fólst í því að þeirra dæluskip gæti notað þær lagnir sem Soffía hefur notað til þessa. 
|nl|</description>
Greinilegt að hugur er í fólki fyrir væntanlegar kosningar
      <description>Fimmtudaginn 23. mars síðastliðinn var að aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði haldinn í húsi Vökuls. Á fundinum voru venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá auk umræðna um sveitarstjórnarkosningar 27. maí nk. Mikil og góð mæting var á fundinn og greinilegt að hugur er í fólki fyrir væntanlegar kosningar. Á fundinum var stjórnin endurkjörin en í henni sitja; Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður, Hjördís Þórs Sigurþórsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Guðrún Ingimundardóttir og Ingvar Þórðarson. Formaður gerði grein fyrir vinnu uppstillingarnefndar og greindi frá því að framboðslisti Samfylkingarinnar til sveitarstjórnar yrði kynntur félagsmönnum fimmtudaginn 30. mars á almennum félagsfundi.</description>
Lóan er komin
      <description>Lóan er komin til landsins. Tvær heiðlóur sáust kl.8.45 í morgun utan við Ósland á Höfn í Hornafirði. Brynjúlfur Brynjólfsson fuglaathugunarmaður segir að þetta sé venjulegur tími að sjá fyrstu lóurnar og undanfarin átta ár hafi komutími hennar verið á tímabilinu 20.-31. mars og fjórum  sinnum hafi fyrstu lóurnar sést 24.mars. Varla er hægt að vænta meiri nákvæmni.  Það er óneytanlega notalegt að heyra og sjá lóurnar aftur og þær hafa góð áhrif á þá sem finnst veturinn langur því flestum finnst vorið koma með farfuglunum.</description>
Ísland - Ungverjaland
      <description>Eins og eflaust margir muna eftir fór hópur nemenda úr FAS ásamt tveimur kennurum til Ungverjalands um miðjan október. Þessi ferð var liður í nemendaskiptaverkefni á vegum Evrópusambandsins. Sú ferð var einstaklega vel lukkuð og lærdómsrík. Laugardaginn 18. febrúar síðast liðinn var svo komið að því að Ungverjarnir kæmu til Íslands og dveldu hér í hálfan mánuð. Félagarnir úr FAS fóru áleiðis til að taka á móti hópnum og má með sanni segja að það hafi orðið fagnaðarfundir þegar hóparnir hittust. Voru gestirnir vart komnir út úr flugvélinni þegar þeim var dembt í Bláa lónið.  Á sunnudeginum var svo haldið austur á bóginn og m.a. höfð viðkoma í gróðurhúsum í Hveragerði, við Skógafoss, í Dyrhólaey, í Skaftafelli og við Jökulsárlón. Það er óhætt að segja að landið hafði tekið vel á móti gestunum því á leiðinni austur var sól og blíða. Ungverjarnir dvöldu í 12 daga hér eystra og bjuggu inni á heimilum íslenskra félaga sinna. Með því móti kynntust þeir landi og þjóð á allt annan hátt en ef þeir hefðu komið sem venjulegir ferðamenn. Það var nóg að gera þá daga sem var staldrað við hér eystra.</description>
Lesið í skóginn og tálgað í tré
      <description>Nú um helgina mun fara fram námskeið sem ber heitið "Lesið í skóginn og tálgað í tré". Á námskeiðinu læra þátttakendur tálgutækni og að vinna með ferskan við. Þeir læra að lesa í ólík form og vita um eiginleika einstakra trjátegunda, fjallað verður á námskeiðinu um grundvallaratriði skógarhirðu um leið og efni er sótt í skóg. Þátttakendur munu kynnast ólíkum þurrkaðferðum og eftirmeðhöndlun á þeim 4-5 gripum sem þeir vinna, ásamt því að fjallað er um umhirðu og umgengni við bitáhöld. Einnig verður fjallað um gildi skógarins fyrir mannlíf,  menningu og efnahag með sérstakri áherslu á gildi upplifana í skógarumhverfi. Þátttakendur fá verkfæri og efni er innifalið í námskeiðinu en mælst er til að þátttakendur séu í vinnufötum og hafi með sér hlý föt og skó til skógarferðar. Vasahníf, vinnuhanska og svuntu er gott að hafa með sér. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Guðmundur Magnússon, handverksmaður á Flúðum.</description>
Stefnan að stækka hænsnabúið um helming
      <description>Góðar líkur eru á að eggjaframleiðsla í Grænahrauni hefjist aftur um miðjan maí og verði að fullu komin í gang síðast í maí, eftir brunann í hænsnabúinu 14.des.sl. Við erum með unga í gömlum búrum og einnig lausa unga annarsstaðar sem fara að verpa um miðjan apríl svo að þá ættum við að geta farið að selja egg sagði Valþór Ingólfsson bóndi. Núna stendur á að fá búrin afgreidd frá framleiðandanum vegna mikillar eftirspurnar til Kína út af fuglaflensunni og fleiru því er erfitt að komast inn í afgreiðsluna sem er í Þýskalandi. Nú erum við búnir að fá staðfestingu á okkar pöntum og þjóðverjarnir eru vanir að standa við sitt. Við byrjum með 3600 varphænur núna og bætum svo 1500 ungum við þegar nýju búrin koma og svo er stefnan að stækka búið um helming sagði Valþór. Við vorum að byrja á stækkuninni og vorum að fá unga þegar þessi ósköp dundu yfir og gátum komið þeim fyrir í Sauðanesi.</description>
      <alt>Grænahraun</alt>
Tilraunir, þrautir og útilega
      <description>Þrjár hornfirskar ungmennahljómsveitir taka nú þátt í Músiktilraunum um þessar mundir, þær eru Terra Firma sem er skipuð nemendum úr FAS, Antik sem er skipuð nemendum úr Heppuskóla og Mute sem er líka að mestu skipuð nemendum í Heppuskóla en trommari þeirra kemur úr FAS. Í gærkvöldi fór fram annað tilraunakvöldið af fimm og þar stigu Terra Firma og Antik á svið og valdi dómnefndin  Antik áfram, hin hljómsveitin sem komst áfram var  reykvísk og var hún valin af gestum. Í kvöld stíga  Mutefélagar á svið.  Allir þessir ungu tónlistarmenn hafa stundað nám í Tónskóla –Austur-Skaftafellssýslu og eru flestir þar enn í námi.10 hljómsveitir keppa á kvöldi og komast tvær hljómsveitir áfram í úrslit í hvert sinn. Úrslitakvöldið fer fram föstudaginn 31.mars. Til lukku Antik.</description>
      <alt>Antik</alt>
Ráðherrafundur EFTA haldinn á Höfn í júní
      <description>Alþjóðlegur bragur verður á hornfirsku bæjarlífi í 25.-27. júní í sumar, en þá verður ráðherrafundur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) haldinn á Höfn. Búist er við að um 150 manns muni sækja fundinn. Í síðustu viku var skipulagsnefnd frá EFTA og utanríkisráðuneytinu stödd hér á Höfn til að skoða aðstæður fyrir fundinn. "Við vildum gjarnan koma til Hafnar og sýna starfsfólki EFTA skrifstofunnar, sem skipuleggur með okkur fundinn, aðstöðuna hér og hvernig landið liggur, til að auðvelda undirbúninginn," sagði Nína Björk Jónsdóttir hjá utanríkisráðuneytinu. Fundinn sækja utanríkis- eða viðskiptaráðherrar EFTA landanna fjögurra, Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss, framkvæmdastjórn EFTA, dómarar hjá EFTA dómstólnum og fulltrúar frá Eftirlitsstofnun EFTA. Þá sækja þingmannanefnd og ráðgjafanefnd EFTA fundinn, ásamt fulltrúum frá Evrópusambandinu, sem munu funda með ráðgjafanefndinni. Ísland fer nú með formennsku í EFTA samstarfinu og er fundurinn haldinn við lok íslensku formennskunnar.</description>
Afhenti Fuglaathugunarstöðinni fuglabókasafn sitt að gjöf
      <description>Í dag afhenti Sverrir Scheving Thorsteinsson Fuglaathugunarstöðinni á Hornafirði fuglabókasafn sitt að gjöf. Sverrir hafði það ekki á hreinu hvað þetta væru margar bækur en sagði að þetta væru nokkrir hillumetrar. Í safninu er fuglafræði frá 17.öld, mikið frá 20.öldinni og þar er m.a.þriggja binda ritverk sem er vísindalegar rannsóknir af fuglum á Grænlandi, Færeyjum og Íslandi. Björn Arnarson þakkaði fyrir þessa höfðinglegu gjöf og sagði að í safninu væru merkar bækur sem eru ekki til annarsstaðar í söfnum og því algjörir gullmolar. Ég tel þessu vel fyrir komið á þessum stað sagði Sverrir og hvergi betra og má líta á þetta sem fyrstu formlegu gjöf mína til bæjarfélagsins, til skoðunar fyrir áhuga og fræðimenn, handbækur sem henta öllum. Safnið verður skráð sem deild innan bókasafns Menningarmiðstöðvarinnar.</description>
      <alt>Fuglaathugunarstöð</alt>
Lions gefur í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði
      <description>Í gær (sunnudag) komu nokkrir félagar úr Lionsklúbbi Hornafjarðar á heilsugæslustöðina á Höfn og afhentu Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra 300.000 kr. í söfnunina til kaupa á röntgenmyndavélabúnaði fyrir heilsugæslustöðina. Unnsteinn Guðmundsson afhenti Guðrúnu gjafabréfið og sagði þetta afrakstur kútmagakvölds hjá þeim Lionsmönnum fyrir stuttu, þetta hefði verið svona ,,karlrembukvöld’’ hjá þeim. Guðrún þakkaði þeim félögum og öllum klúbbfélögunum þennan góða stuðning. Guðrún sagði að fleiri hefðu lagt þeim lið t.d.hefðu hjónin Halldóra Bergljót og Ágúst Þorbjörnsson gefið 250.000 kr, Útgerðarfélagið Sigurður Ólafsson 200.000 og Vís 75.000.</description>
Rjómablíða á Hornafirði í dag
      <description>Logn, 10°hiti, ekki ský á himni og sólskin hér á suðausturhorninu, er veðurlýsingin í dag og spáin í hádeginu var eins fyrir morgundaginn um suðausturlandið. Léttklæddu strákarnir á myndinni voru á leiðinni inn í Bergá þar sem þeir ætla að fá sér sundsprett, kannski svolítið snemma vors að fara í ána en þegar svona viðrar er margt hægt að gera. Bergáin er vinsæll staður yfir sumarið hjá krökkum á öllum aldri, þar er góður hylur til að stinga sér í og sumir taka veiðistöngina með sér.</description>
Árshátíð Grunnskólans í Hofgarði
      <description>Í kvöld föstudagskvöld kl.20.00 heldur Grunnskólinn í Hofgarði árshátíð sína. Þó skólinn sé ekki fjölmennur þá er dagskráin fjölbreytt og efni hennar sem allir nemendur flytja er leikið, lesið og sungið og á eftir er veislukaffi fyrir alla og ekki neinn vafi á að þar svigna borðin undan gómsætum hnallþórum og öðru góðgæti. Aðgangseyrir er kr.1000 og er kaffið innifalið í því, einnig er skólablaðið til sölu á kr.500. Ágóðinn er lagður inn í ferðasjóðinn. Sveitungarnir eru vanir að fjölmenna á þessar hátíðir barnanna og ekki hamlar veður ferðum því það er eins og best verður á kosið  logn, blíða og vorlegt.</description>
Fólk á Höfn taldi sig hafa heyrt í lóunni
      <description>Tvö síðustu kvöld taldi fólk á Höfn sig hafa heyrt í lóunni en sökum myrkurs sást enginn fugl. Venjulega kemur lóan ekki til landsins fyrr en í apríl svo haft var samband við Björn Arnarson fuglaáhugamann sem fylgist náið með komu farfuglanna og hann spurður hvort lóan væri komin. Björn taldi það ekki vera og sagði líklegast að þarna  hefðu ,,starraskrattar’’ eins og hann orðaði það, verið á ferðinni. Starrinn  fer að herma eftir lóunni nokkru áður en hún kemur og t.d. er algengt að fólk í miðborg Reykjavíkur telur sig heyra í lóunni en reynist svo vera starri. Björn segir að starrinn hermi eftir ótrúlega mörgum fuglategundum og nái þeim vel.</description>
      <alt>Starri</alt>
Verða með fræðsluerindi fyrir bændur á fimmtudögum
      <description>Búnaðarsamband Suðurlands hefur tekið upp þá nýbreytni að vera með fræðsluerindi fyrir bændur og búalið á hverjum fimmtudegi næstu vikurnar. Að sögn Grétars Þorkelssonar starfsmann búnaðarsambandsins í Skaftafellssýslum fer þessi fimmtudagsfræðsla fram ýmist í fundarsal BSSL á Selfossi eða hjá Fræðsluneti Suðurlands og verður hún send út um fjarfundarbúnað í Framhaldsskólanum á Höfn einnig á Klaustri og í Vík.Hornfirskir  bændur geta því að fullu nýtt sér þessa fræðslu hér heima.  Grétar sagði fundinn sl.fimmtudag hafa verið mjög áhugaverðan og fróðlegan en þar var fjallað um prótíngjafa s.s. ertur, flækjur, og fóðurlúpínu og möguleika á ræktun þeirra hér á landi.</description>
Setja upp fuglanet í Einarslundi
      <description>Starfsmenn Fuglaathugunarstöðvarinnar á Hornafirði þeir Björn Arnarson og Brynjúlfur Brynjólfsson unnu að því í dag að setja upp fuglanet í Einarslundi. Fuglanetin eru til að fanga skógarþresti og aðra smáfugla sem verða merktir og síðan sleppt. Í fyrra komu fyrstu þrestirnir 20.mars en 16. mars árið áður  svo þeirra er von hvenær sem er núna í vorblíðunni. Þann 14.mars var eitt ár liðið frá opnun Fuglaathugunarstöðvarinnar og á ársafmælinu var fyrsti aðalfundur stöðvarinnar haldinn. Á aðalfundinum afhenti Sverrir Scheving Fuglaathugunarstöðinni stórt safn fuglabóka bæði íslenskar og erlendar bækur og er þessi gjöf stöðinni dýrmætur fengur. Í stjórn sitja; Björn G. Arnarson formaður, Brynjúlfur Brynjólfsson og Eyjólfur Guðmundsson.</description>
      <alt>Fuglanet</alt>
Fasteignasala  mun líflegri en á sama tíma í fyrra
      <description>Fasteignasala hér á Hornafirði hefur verið mun líflegri það sem af er árinu en var á sama tíma í fyrra segir Sigríður Kristinsdóttir sem rekur fasteignasöluna Hraun. Það kom góður kippur í söluna í febrúar og við sjáum að fasteignaverð hér fer stighækkandi. Kaupendur eru bæði héðan af svæðinu og fólk sem er að flytja hingað. Mest er sala í einbýlishúsum með bílskúr, fólk er að kaupa sér stærra húsnæði og svo eru aðrir sem vilja fara í minna húsnæði. Sigríður segir að núna sé nóg framboð á leiguíbúðum  á staðnum og ekki er lengur sá flöskuháls sem var í þeim málum eftir að leigusali keypti margar íbúðir hér í fyrra til að leigja út, og þar með komnir fleiri aðilar með leigumarkaðinn á staðnum en bæjarfélagið. Leiga á íbúðarhúsnæði er um 500-600 kr. á fermetra.</description>
Fjölmennt á þingi USÚ
      <description>Síðastliðinn fimmtudag fór fram 73. þing USÚ en að þessu sinni var það haldið að Smyrlabjörgum. Mæting var mjög góð og voru 33 þingfulltrúar mættir á þingið. Gestir frá UMFÍ voru Björn Jónsson formaður og Sæmundur Runólfsson framkvæmdarstjóri.  Á þinginu voru tekin fyrir venjuleg aðalfundarstörf og var stjórnin endurkjörin, í henni sitja Ragnhildur Einarsdóttir formaður, Kjartan Hreinsson ritari og Jóhanna Kristjánsdóttir gjaldkeri. Mikil bjartsýni ríkir innan sambandsins enda starfsemi mjög lífleg og margt spennandi framundan, svo sem Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður í sveitarfélaginu á næsta ári.</description>
Forseti Íslands og kona hans væntanleg í opinbera heimsókn
      <description>Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans Dorrit Moussaieff eru væntanleg í opinbera heimsókn til Hornafjarðar í síðustu viku apríl nk. Páll Björnsson sýslumaður hafði samband við bæjarstjórnina með skilaboð þess efnis að forsetinn óskaði eftir að koma hingað í opinbera heimsókn og var  þeim boðum  að sjálfsögðu svarað um hæl að forsetinn og fylgdarlið hans væri velkomið til okkar sagði Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar. Forsetaritari er væntanlegur á næstunni  til að skipuleggja heimsóknina ásamt heimamönnum. Áætlað er að forsetinn og fylgdarlið hans komi með flugvél til Hornafjarðar 27. apríl og fari til baka 28. apríl.</description>
      <alt>Forseti Íslands</alt>
Sumaráætlun Ferðafélagsins komin út
      <description>Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu hefur gefið út ferðaáætlun fyrir vorið og sumarið 2006. Fyrsta ferð félagsins verður sunnudaginn 19.mars á Suðurfjörur. Farið verður frá tjaldstæðinu  kl. 11.00 og ekið suður á Mýrar og svo sem leið liggur niður með Hólmsá og út á fjörur. Greiðfært er á bílum alveg austur undir Hvanney og  er svona fjöruferð hrein upplifun fyrir alla sem gaman hafa af útiveru ekki síst börnin. Það þarf varla að taka það fram að mjög nauðsynlegt er að hafa gott og holt nesti með í ferðina. Þeir sem ekki hafa komið á Suðurfjörur og gengið út í Hvanney skoðað stórgrýtta fjöruna og ekki síst Hornafjarðarós, þeir ættu ekki að sleppa svona ferð undir góðri leiðsögn. Ferðafélagið verður með nokkrar síðdegis og kvöldgönguferðir í sumar sem líka eru á virkum dögum s.s. gönguferð í kringum Reyðarártind og í Kastárdal-Kex. Af ,,þriggja skóa’’ ferðum má nefna göngu um Svarthamra-Snjótinda og Haukstjörn í Álftafirði, Múlaskála að göngubrúnni við Einstigið og haustlitaferðin verður að þessu sinni í Bæjarstaðaskóg.</description>
Tíu tilkynntu um framboð sitt til prófkjörs
      <description>Á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í A-Skaft 11. mars s.l. tilkynntu eftirfarandi aðilar framboð sitt til prófkjörs, er ákvarðar lista Sjálfstæðisflokksins fyrir Sveitastjórnakosningarnar í vor.  Prófkjörsdagur verður þann 8. apríl 2006. Alber Eymundsson og Halldóra B Jónsdóttir í 1.sæti, Björn Ingi Jónsson og Björn E Traustason í 2. sæti, Valdimar Einarsson í 3. sæti, Björk Pálsdóttir í 3.-5. sæti Einar Karlsson í 3.-6. sæti, Gestur Halldórsson í 4. sæti, Halldóra Guðmundsd í 4-6. og Sindri Ragnarsson í 5. sætið.</description>
Héldu heimleiðis eftir 15 viðburðarríka daga á Íslandi
      <description>Ungverska skólafólkið sem kom í heimsókn til nemenda FAS á dögunum hélt heimleiðis um síðustu helgi eftir 15 viðburðarríka daga á Íslandi og eru nú komnir til síns heima. Hjördís Skírnisdóttir kennari í Fas sem hafði yfirumsjón með móttöku þeirra  hér segir að þessi heimsókn hafi tekist alveg einstaklega vel og mikil og góð tengsl myndast milli ungversku unglinganna og félaga þeirra hér sem heimsóttu þau til Ungverjalands í fyrra. Þetta er búið að vera óskaplega góður tími  bæði fyrir okkur og gesti okkar og það hafa allir, eða nær allir, tekið okkur opnum örmum þar sem við höfum komið með þau og það er margt sem hefur komið þeim mikið á óvart og þau hafa aldrei upplifað eða séð áður sagði Hjördís.</description>
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
      <description>Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Hafnarkirkju í gær. Var það í 6. sinn sem hún er haldin hér á Suðausturlandi. Upplesarar komu frá Grunnskóla Djúpavogs, Hrollaugsstöðum og Hafnarskóla, Stóðu allir lesararnir sig mjög vel. Rebekka Dröfn Ólafsdóttir frá Hafnarskóla sigraði, í öðru sæti var Lejla Cardaklija frá Hafnarskóla og í þriðja sæti Sigurður Ragnarsson einnig úr Hafnarskóla.  Á meðan dómarar réðu ráðum sínum léku nemendur Tónskóla A-Skaftafellssýslu undir stjórn Jóhanns Moravék og Þrastar Höskuldssonar nokkur lög. Í hléi bauð Skólaskrifstofa Hornafjarðar og Mjólkursamsalan upp á veitingar. Sparisjóður Hornafjarðar veitti verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og Edda – útgáfa  gaf bók að gjöf. Einnig gaf skólaskrifstofa Hornafjarðar keppendum og þjálfurum þeirra blóm.</description>
Hljómsveitin ANTIK með tónleika í Sindrabæ
      <description>Sunnudagskvöldið 12. mars n.k. mun hljómsveitin ANTIK halda tónleika hér á Hornafirði til að fagna velgengni þeirra á Samfés síðustu helgi en þar fóru strákarnir með frumsamda lagið "Hættið að hlæja" í keppnina og fengu þar verðlaun fyrir besta frumsamda texta og besta frumsamda lag. Tónleikarnir eru haldnir í Sindrabæ og opnar húsið klukkan 20:00 og kostar 500 kr inn. Ætlar hljómsveitin að spila frumsamin lög ásamt nokkrum leyndum smellum. Í hljómsveitinni eru Ragnar Ægir Fjölnisson, gítar og söngur, Elías Tjörvi Halldórsson, Bassi og bakrödd og Hafþór Imsland trommur. Nóg hefur verið að gera hjá þeim piltum upp á síðkastið og eru þeir búnir að ferðast víða núna síðustu 3 vikurnar. "Við skelltum okkur alla leið til Seyðisfjarðar og spiluðum þar á söngvakeppni SamAust og lentum í 2. sæti og komumst því áfram á Samfés sem var bara algjörlega frábært og fengum við mikla reynslu við að spila á þessum 2 stöðum" sagði Ragnar er við náðum tal á honum.</description>
      <alt>Antik</alt>