Heimasíða T.A.K., www.tengslanet.is, verður opnuð formlega laugardaginn 8. apríl kl. 15:00. Samhliða verða kynningarfundir með aðstoð fjarfundabúnaðar á sex stöðum á Austurlandi, einn af þeim stöðum eru Nýheimar. Þar munu Elín S. Harðardóttir og Rannveig Einarsdóttir kynna sprotafyrirtækið Náttúrulega ehf. Á vefnum verða m.a. upplýsingar um félagið og það sem er á döfinni, kynningu á félagskonum og vefumræðum þeirra á milli. Að auki ýmiss fróðleikur sem nýst getur félagskonum. Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru ný samtök kvenna á Austurlandi og er hlutverk þeirra er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti tengslanetsins er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl.
Lesa meira