Apríl
Reiðhjólasala
Reiðhjólasala
Lúlli búinn að stilla upp fyrir söluna, er hér ásamt starfsmönnum gámafyrirtækisins við hluta af reiðhjólunum sem flutt voru í til Hafnar.

01.04.2006 Apríl

Ný reiðhjól til sölu á 2000 kr. í Hornabæ

Í dag frá kl. 13:00 verða reiðhjól til sölu í Hornabæ á 2000 þúsund krónur en það er Ludwig H. Gunnarsson (Lúlli) sem stendur fyrir sölunni. Um er að ræða innflutt reiðhjól sem Lúlla áskotnaðist á uppboði hjá Lögreglunni í Kaupmannahöfn sem hann sótti í byrjun mars. "Ég átti mjög erfitt með að trúa að ég hefði fengið pakkann, var staddur í Kaupmannahöfn í helgarferð með henni Gunnu minni þegar við rákumst á þetta uppboð lögreglunnar, bauð hlægilega lága upphæð sem ég vil ekki gefa upp en viti menn, fékk pakkann fyrir slikk. Að sögn Lúlla þá gekk allt upp með að fá þau flutt hingað til Hafnar. Sökum þess að hjólin eru keypt á uppboði þá flokkast þau undir notuð reiðhjól og er ekki tollur af þeim við flutning hingað til lands. Fyrir vikið er hægt að bjóða þau á mjög góðu verði segir Lúlli og er stefnan að losna við þau á nokkrum dögum enda stutt í sumarið.

Um að ræða 56 reiðhjól af öllum stærðum og gerðum, gírahjól, torfæruhjól, krakkahjól svo einhver séu nefnd og eru öll hjólin í topp standi, um helmingur þeirra eru eins og ný. Lúlli segir að gamla góða reglan gildi "Fyrstir koma fyrstir fá".

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica