Halldóra Bergljót mun leiða lista sjálfstæðismanna
Talningu í Prófkjöri sjálfstæðismanna lauk um fimm leitið í morgun og eru úrslitin ljós. Halldóra Bergljót Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar mun leiða lista sjálfstæðismanna í sveitarfélaginu. Hún hlaut samtals 222 atkvæði í fyrsta sæti, Björn Ingi Jónsson í öðru sæti með 249, Albert Eymundsson bæjarstjóri sem keppti við Halldóru Bergljótu um fyrsta sætið lenti í þriðja sæti með 187 atkvæði, Björk Pálsdóttir hafnaði í fjórða með 210 atkvæði og Halldóra Guðmundsdóttir í því sjötta með 274 atkvæði. Samtals voru 424 sem kusu í prófkjörinu. Björn Emil Traustason bæjarfulltrúi sem keppti við Björn Inga um annað sæti er ekki einn að sex efstu.
Listinn raðast þannig
1. sæti Halldóra B. Jónsdóttir, 222 atkvæði
2. sæti Björn Ingi Jónsson, 249 atkvæði
3. sæti Albert Eymundsson, 187 atkvæði
4. sæti Björk Pálsdóttir, 210 atkvæði
5. sæti Einar Karlsson, 220 atkvæði
6. sæti Halldóra Guðmundsdóttir, 274 atkvæði
Sjá talningartöflu (lokatalning)





Skrifa athugasemd