Fjölmenn fjölskylduhátíð í íþróttahúsi
Samantekt: Haukur Helgi Þorvaldsson
Talið er að nær 600 manns hafi komið saman á fjölskylduhátíðinni sem haldin var til heiðurs forseta Íslands og forsetafrú í íþróttahúsinu á Höfn í gærkveldi. Fjölmargir hornfirskir listamenn komu þar fram og vöktu mikla hrifningu gesta. Forseti Íslands ávarpaði hátíðargesti og þakkaði fyrir góðar móttökur sem þau hjónin hefðu verið aðnjótandi í þessari annarri opinberri heimsókn sinni í Austur-Skaftafellssýslu. Forsetinn kom víða við í ávarpi sínu; ræddi um ægifagra náttúru sýslunnar, góða aðstöðu til að rækta menntun og menningu. Hér væri líka að finna öflug og framsækin fyrirtæki og stofnanir. Hann hvatti til að hlúð yrði vel að uppbyggingu Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit til að varðveita minningu Þórbergs Þórðarsonar skálds og nefndi í því samhengi Hús skáldsins að Halldórs Kiljan Laxness Gljúfrasteini og Gunnarsstofu á Skriðuklaustri þar sem varðveitt er minning Gunnars Gunnarssonar skálds.
Forsetinn lagði áherslu á þann mikla auð sem fólk hefði úr að vinna í Austur-Skaftafellssýslu og sagðist öfunda unga fólkið í dag af að takast á við fjölbreytt tækifæri á svo mörgum sviðum.
Þá veitti forsetinn 10 grunnskólanemum "Hvatningu til ungra Íslendinga" og óskaði eftir því að fá að fylgjast með þeim í framtíðinni. Lagði forsetinn áherslu á að þeir sem fengju hvatningu væru fulltrúar ungs fólks almennt.
Eftirtalin ungmenni fengu hvatningu forseta Íslands að þessu sinni:
Guðjón Ingibergur Ólafsson 12 ára, Silfurbraut 10, Höfn. Þrátt fyrir meðfæddan sjúkdóm kemur hann fram af æðruleysi og hefur reynst vera góður námsmaður og leikinn í knattspyrnu.
Gunnar Ásgeirsson, 14 ára, Austurbraut 18, Höfn Með tónlistarflutningi sínum hefur hann sýnt mikinn þroska og næmni i túlkun. Hann stundar einnig hestamennsku af kappi og er virkur þátttakandi í leiklist innan skólans.
Jóhann Kristófer Antonsson, 15 ára, Kirkjubraut 64, Höfn. Með sjálfsnámi hefur hann tileinkað sér japanskan teiknimyndastíl, semur hugmyndaríkar teiknimyndasögur sem eru fullar af léttri kímni. Hann hefur sýnt fjölþætta listahæfileika.
Kristey Lilja Valgeirsdóttir, 12 ára, Mánabraut 2, Höfn. Hún er framúrskarandi fimleikamaður, Íslandsmeistari í fimleikum, góður námsmaður og stundar þverflautunám af miklum dugnaði.
Lejla Cardaklija, 13 ára, Höfðavegur 6, Höfn. Hún hefur náð frábærum árangri í íslensku þrátt fyrir að móðurmál hennar sé bosníska og varð í öðru sæti í stóru upplestrarkeppninni. Hún er einnig góð í knattspyrnu.
Ragnar Ægir Fjölnisson, 16 ára, Breiðabólstað 4, Hala 2. Hann keppti, ásamt hljómsveit sinni Antik, í söngvakeppni Samfés fyrir skemmstu þar sem dómnefnd veitti honum viðurkenningu fyrir besta frumsamda lagið og besta frumsamda textann.
Rebekka Dröfn Ólafsdóttir 13 ára, Fákaleiru 10B, Höfn. Hún er góður nemandi og sigraði í stóru upplestarkeppninni, dugleg í þverflautuleik og sundi.
Sandra Rán Ásgrímsdóttir, 15 ára, Vogabraut 5, Höfn. Hún hefur verið burðarás í félagslífi skólans, er góð íþróttakona og ötull námsmaður.
Símon Rafn Björnsson, 13 ára. Hestgerði, Höfn. Hann hefur sýnt einstaka ljúfmennsku í allri framgöngu, þolinmæði og náð góðum námsárangri.
Sveinbjörg Zophoníasdóttir, 13 ára, Hafnarbraut 22, Höfn. Hún er afreksmaður í frjálsum íþróttum, Íslandsmeistari í kúluvarpi og einnig góður námsmaður.
Í lok hátíðarinnar færði forsetinn Austur-Skaftfellingum að gjöf mynd frá heimsókn Ásgeirs Ásgeirssonar forseta Íslands í Austur - Skaftafellssýslu árið 1958. Bæjarstjórn færði forsetanum málverk eftir Helgu Erlendsdóttir (Ljósblá) listakonu í Árnanesi í Nesjum og forsetafrúin fékk keramikhús eftir listakonuna Rannveigu Gunnlaugsdóttir (Nanný) á Höfn.
Hátíðinni lauk síðan með því að forsetahjónin kvöddu alla hátíðargesti með handabandi.
Í dag miðvikudag lýkur heimsókn forsetahjónanna í Austur- Skaftafellssýslu en þá halda þau vestur á bóginn þar sem þau heimsækja býli og stofnanir.
Í lok dags verður kveðjuhóf í hótel Skaftafelli í Öræfum.




Skrifa athugasemd