Árshátíð Hrollaugsstaðaskóla
Árshátíð Hrollaugsstaðaskóla verður haldin á Hrollaugsstöðum föstudaginn 28.apríl og hefst klukkan 20:00. Þetta er síðasta árshátíð skólans þar sem ákveðið hefur verið að ekki verði kennsla í Hrollaugsstaðaskóla næsta vetur. Nemendur eru með fjölmörg skemmtiatriði, selja skólablað og síðan eru kaffiveitingar. Allir eru velkomnir að koma og skemmta sér með nemendum og starfsfólki Hrollaugsstaðaskóla.
Forseti Íslands og forsetafrú ásamt fylgdarliði heimsóttu Hrollaugsstaðaskóla á heimsókn sinni í sýsluna og fluttu nemendur fyrir hópinn dagskrárlið sem fjallaði um sögu völvunnar á Kálfafellsstað og líkneski Ólafs helga. Gerðu gestir góðan róm að dagskránni. Símon Rafn Björnsson nemandi í Hrollaugsstaðaskóla hlaut hvatningarverðlaun forsetans fyrir námsárangur, en einnig fyrir einstaka ljúfmennsku og þolinmæði enda borið höfuð og herðar yfir nemendur skólans í vetur. Hann var einn langelstur í fjögurra barna hópi sem nú eru að ljúka námi sínu á heimaslóð. Næsta vetur sækja þessir nemendur nám í Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla.





Skrifa athugasemd