Apríl
Forsetaheimsókn 26.apríl 2006
Forsetaheimsókn 26.apríl 2006
Forsetaheimsókn 26.apríl 2006
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

27.04.2006 Apríl

Þetta var alveg ótrúlegt, aldeilis meiri háttar ferð

Í gær héldu forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff ásamt sýslumannshjónunum Páli og Ólafíu, Albert bæjarstjóra, bæjarstjórnarmönnum og öðru fylgdarliði, í Suðursveit þar sem komið var við í Hrollaugsstaðarskóla, í Þórbergssetri á Hala og að Jökulsárlóni. Við lónið var Einar Björn staðarhaldari að gera klárt fyrir siglingu en talsvert ísrek var við landið. Vel tókst þó að koma farþegunum um borð og gúmbátnum á flot og fikra sig út á lónið þar sem fjöldi sela var á sveimi. Haldið var á James Bond slóðir þ.e þar sem kvikmyndað var forðum. Þetta var alveg ótrúlegt, aldeilis meiri háttar ferð sagði Ólafur Ragnar þegar hann steig á land og greinilegt var að ekki var Dorrit minna ánægð með siglinguna.

Við Jökulsárlón tók Sigurður Bjarnason í Hofsnesi við leiðsögu það sem eftir var leiðar og var næsti viðkomustaður Kvísker. Eftir smá stans hjá þeim Kvískerjabræðrum Sigurði, Hálfdáni og Helga þar sem forsetahjónin skoðuðu söfn þeirra bræðra, var haldið að Hofgarði í Öræfum og barna- og leikskólinn heimsóttur. Næsti viðkomustaður var Þjóðgarðurinn í Skaftafelli þar sem Ragnar Frank þjóðgarðsvörður og starfsfólk hans tók á móti forsetanum og fylgdarliði og sýndu þeim staðinn. Farið var að gamla Selbænum þar sem unnið er að uppbyggingu gömlu húsanna og Ragnar upplýsti gestina um staðinn og framkvæmdir þar.

Síðasti viðkomustaðurinn í þessari heimsókn forsetahjónanna var Hótel Skaftafell í Freysnesi. Þegar þangað kom var fjöldi íbúa Öræfasveitar mættir þar til að fagna góðum gestum. Anna María Ragnarsdóttir hótelstjóri sá um að ekkert skorti á gómsætar veitingar og kaffi. Öræfingar færðu forsetanum að gjöf bókina ,,Félagsvinurinn´´ bók sem hefur að geyma gömul rit sem gefin voru út í Öræfasveit og hétu Félagsvinurinn.
Eftir ánægjulega samverustund í Freysnesi var haldið á flugvöllinn á Fagurhólsmýri þar sem flugvél Flugmálastjórnar beið og um kl.19 héldu forseti og fylgdarlið heim á leið.

Ég held að þetta hafi lukkast mjög vel og okkar gestir verið ánægðir með komuna í heild, annað var ekki að heyra sagði Páll Björnsson sýslumaður. Það stóð reyndar tæpt að hægt væri að komast út á Jökulsárlón vegna íss en það tókst og veðrið hefur leikið við okkur þessa daga allt þar til í síðasta áfanganum frá Kvískerjum þá var smá væta og ekki nógu gott skyggni.

 

Sjá fleiri myndir í myndasafni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica