Maí
Á Hornafjarðarflugvelli
Á Hornafjarðarflugvelli
Á Hornafjarðarflugvelli

09.05.2006 Maí

Flugfar frá Höfn til Reykjavíkur á 70 krónur

Í tilefni að opnun á nýjum bókunarvef fyrir flug býður Landsflug ásamt Flugfélagi Íslands takmörkuð sæti á sérstöku opnunar-tilboðsverði sem aðeins er hægt að bóka á netinu í dag og var einnig hægt í gær. Tilboðsverðið á aðeins við ef flogið er tímabilið 8. til 14 maí. Verðið er 70 krónur aðra leiðina (1000 kr. með flugvallarskatti). Rétt er að taka fram að hér er um að ræða 500 miða á flugleiðum Landsflugs og Flugfélags Íslands og gildir reglan góða fyrstir koma fyrstir fá. Samkvæmt samtali við Sigurbjörn Daða Dagbjartsson sölu og markaðsstjóra hjá Landsflugi þá hefur verið mikil ásókn í þetta opnunartilboð. Hann segir að Landsflug líti björtum augum á sumarið enda mikil aukning á farþegum til og frá Höfn í sumar sem eru að mestu leiti erlendir ferðamenn.

Sumaráætlun Landsflugs hefst þriðjudaginn 16. maí n.k. og þá bætist við morgunflug á föstudögum.

Hér er hægt að bóka flug (bóka)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica