Maí
Fuglaathugunarmenn taka sýni vegna fuglaflensu
Fuglaathugunarmenn taka sýni vegna fuglaflensu
Brynjúlfur Brynjólfsson og Börn Arnarsson taka sýni
Mynd 1 af 2
1 2

10.05.2006 Maí

Ef sýnin reynist neikvæð verður viðbúnaðarstigi tvö vegna fuglaflensu aflétt

Starfsmenn Fuglaathugunarstöðvarinnar á Hornafirði, Björn Arnarson og Brynjúlfur Brynjólfsson fóru í Óslandið í morgun og tóku 20 sýni frá kríunum og frá urtöndum og stokköndum voru tekin 8 sýni vegna fuglaflensu. Sýni eru núna tekin víðsvegar um landið og reynist þau neikvæð verður viðbúnaðarstigi tvö vegna fuglaflensu aflétt. Nánast allir farfuglar eru komnir til landsins og Óðinshaninn, sá sem venjulega er síðastur farfugla, er að detta hér inn síðustu dagana. Fjölbreytt fuglalíf er í Óslandi og telur Björn að þar verpi um 15 tegundir fugla. Um helmingur þeirra fugla sem hér eru, eru byrjaðir að verpa og daglega bætast fleiri í þann hóp. Áður fyrr biðu margir þess að ná sér í egg áður en þau yrðu unguð og þótti það búbót hin besta en nú er öldin önnur og minna sótt í eggin og sagði Björn að eggjataka hefði verið áberandi minni í fyrra en áður og á hann von á að svo verði einnig í sumar, líklega mjög lítil.


Fuglamerkingar eru eitt af því sem starfsmenn Fuglaathugunarstöðvarinnar sjá um og það sem af er þessu ári hafa rúmlega 1100 fuglar af 12 tegundum verið merktir og við munum halda því áfram og merkja eins mikið og við komumst yfir sagði Björn og verður áhersla lögð á merkingar við Jökulsárlón og í Óslandi. Talsvert kom af flækingsfuglum í vikunni og mikið af svölum, meira en áður.

Búið er að taka niður fuglanetin í Einarslundi svo ekki sé hætta á að þeir fuglar sem eiga egg lendi í þeim, en net þessi eru til að fanga fugla til merkingar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica