Maí
Karlakór Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur

10.05.2006 Maí

Karlakór Reykjavíkur í Hafnarkirkju

Fimmtudaginn 11. maí n.k. mun Karlakór Reykjavíkur leggja land undir fót og heimsækja Höfn. Kórinn mun halda tónleika í Hafnarkirkju kl. 20.00 þann dag. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson og mun Guðlaug Hestnes leika undir á píanó í nokkrum lögum. Daginn eftir heldur kórinn för sinni áfram og mun koma fram víðs vegar í Fjarðabyggð og á Egilsstöðum. Laugardaginn 13. maí verða síðan tónleikar í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði og hefjast þeir kl. 16.00. Þar munu þær Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran (Diddú) og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari koma fram með kórnum.

Karlakór Reykjavíkur er 80 ára í ár og hafa kórmenn óvenjumikið fyrir stafni af því tilefni. Auk heimsóknarinnar austur munu kórmenn halda í tónleikaferð til Þýskalands og Austurríkis í byrjun ágúst n.k.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica