Maí
Flugslysaæfing 2006
Flugslysaæfing 2006
Frá flugslysaæfingunni sem haldin var í dag (laugardag)

13.05.2006 Maí

Verkaskipting þeirra sem komu að flugslysaæfingunni var einstaklega góð

Flugslysaæfingin sem haldin var í dag gekk í heildina mjög vel og samhæfing allra viðbragðsaðila á Hornarfjarðarsvæðinu góð. Þegar margir aðilar vinna saman kemur í ljós hversu samvinna er mikilvæg en samvinna og verkaskipting þeirra sem komu að æfingunni í dag var einstaklega góð og gekk vel. Slökkvistarf og björgunarstarf gekk vel á slysstað, eins og aðhlynning sjúklinga. Ekki er síður mikilvægt að huga að andlegu hliðinni þegar slys ber að höndum, en sú aðhlynning var einnig æfð í dag. Allir þessir þættir sem vel gengu segja mikið til um það góða samstarf sem viðbragðsaðilar, jafnt atvinnumenn, áhugamenn og sjálfboðaliðar, hafa unnið og undirbúið á sl. mánuðum. Fjarskiptin gengu ekki sem skildi og helgaðist það m.a. vegna fjarlægðar á milli flugvallarins og Hafnar. Sá þáttur verður skoðaður svo hægt sé að vinna að úrbótum.

En þegar æfð eru viðbrögð við slysi koma oft veikleikar í ljós, enda er það eitt megin hlutverk æfinga að leiða í ljós hugsanlega veikleika. Veikleikarnir eru dregnir fram og unnið að því að bæta það sem ekki gengur vel.
Á æfingunni var unnið eftir flugslysaáætlun fyrir Hornafjarðarflugvöll sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði.

 
 
 
Hjördís Guðmundsdóttir
Upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands
hjordisg@caa.is


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica