Maí
Mastrið hefur göngu sína á ný í kvöld á SkjáVarpi
Hver man ekki eftir Mastursþáttunum sem sýndir voru á Skjávarpi síðasta sumar en þættirnir voru staðbundnir frétta- og afþreyingarþættir þar sem lífið og tilveran í Hornafirði var til umfjöllunar undir stjórn Gunnars Auðuns fréttastjóra, Gísla Arnars, Sindra, Steinars og Sævars. Viti menn, biðin er á enda þeir eru mættir enn á ný með þáttinn, enn betri, ferskari og reynslunni ríkari. Þættirnir munu verða sýndir í sumar á miðvikudagskvöldum kl. 20:00. En í kvöld verður þetta með aðeins öðru sniði, því þá verður kosningaþáttur Mastursins og er hann kl. 20:00.
Elskum náungann, elskum okkur sjálf og horfum á mastrið á SkjáVarpi í kvöld kl.20.





Skrifa athugasemd