Júní
Hjólað til góðs
Hjólað til góðs
Hjólað til góðs
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

07.06.2006 Júní

Komu til Hafnar um kl. 19 í gærkvöldi

Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja og félagar hans sem lögðu á stað hjólandi frá Keflavík eldsnemma á sunnudagsmorgun komu til Hafnar um kl 19 í gærkvöldi. Eins og fram hefur komið hér á vefnum eru þeir félagar á hringferð um landið til að safna fé til styrktar langveikum börnum undir merkinu ,,Hjólum til góðs". Ferðin hefur gengið afskaplega vel segir Sigmundur og þetta er ótrúlega skemmtileg upplifun, okkur er allsstaðar svo vel tekið. Við lögðum af stað frá Kirkjubæjarklaustri kl. 9.30 í morgun og fengum rosalega gott veður og fallegt, 12-13° hita og fjöllin voru svo falleg að við gleymdum okkur alveg á þessari hraðferð. Þegar við komum á brúna yfir Hornafjarðarfljót vorum við búnir að hjóla 501 km. frá því við fórum frá Keflavík. Leiðin frá Klaustri til Hafnar er lengsti áfanginn á leiðinni 201 km.

Fulltrúar Slökkviliðs Hornafjarðar ásamt lögreglunni á Höfn fóru á móti hjólreiðarköppunum inn að Nesjaskóla og fylgdu þeim til Hafnar. Á morgun halda þeir félagar áfram og er Stöðvarfjörður næsti áfangastaður. Við ætlum að komast til Akureyrar fyrir helgina og vera þar yfir sjómannadagshelgina með fjölskyldum okkar sem koma þangað til okkar sagði Sigmundur, síðan verður ferðinni haldið áfram og er áætluð heimkoma 14. júní og við skorum á alla sem geta, að taka þátt í þessu átaki með okkur því þörfin er mikil og endilega komið og hjólið spöl með okkur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica