Júní
Gengið fyrir Horn
Gengið fyrir Horn
Gengið fyrir Horn

07.06.2006 Júní

Þar mátti sjá rústir gömlu verslunarhúsanna við Papós

Laugardaginn 20. maí lagði lítill en vaskur hópur af stað frá tjaldstæðinu í norðankalda, var ferðinni heitið fyrir Vestrahorn. Þessi leið er mjög falleg og fjölbreytileg. Má þar meðal annars sjá rústir gömlu verslunarhúsanna við Papós, hamragirt Brunnhornið og Vestrahornið, skriður og fallega fjöru, þar sem ungir og aldnir geta grúskað um stund, einnig eru þarna rústir af Breskri herstöð, Hundagjóta og Kolbeinshellir. Í Kolbeinshelli hafðist við norðlenskur óbótamaður Kolbeinn að nafni. Hann var tekinn af lífi af skipsfélögum sínum sem réru frá Hornshöfn á Hafnartanga. Illa gekk að láta hinn látna sakamann liggja kyrran í dys sinni. Er við sitjum í rústum Bresku-herstöðvarinnar og ræðum um Kolbein og afdrif hans, sjáum við hvar vera er á sveimi lengst niður í Hafnartanga. Það flýgur um hug okkar hvort Kolbeinn sé enn á ferli. En þegar betur var að gáð var þetta hvorki Kolbeinn eða breskur hermaður, heldur þýskur ferðalangur að skoða íslenska náttúru og dýralíf á köldum vordegi. Að endingu má svo skoða bæjarhúsin á Horni.

Ferðafélagið vekur svo athygli á breytingum á ferð félagsins Illikambur --Einstig en ferð þeirri verður frestað um eina viku og tengist vinnuferð í Múlaskála.

Vekjum athygli á kvöldferð Bakkaland - Borgarklettur sem verður farin fimmtudaginn 8. júní undir leiðsögn Rannveigar Einarsdóttir. Lagt verður af stað frá tjaldstæðinu kl. 18.00 Ferðin í heild tekur um 4 tíma Kostar 500 kr. fyrir 16 ára og eldri. Þeir sem hafa áhuga á að fara með geta haft samband við Möggu í síma 478 8948, 868 7624 og 478 1240, Ragna í síma 4781738, 6625074 eða Rannveigu í 6991424.

Og ferða kveðskapur í restina

Á ferð og flugi
Við ávalt erum á ferð og flugi
um fjöll og dali og fjörusand
Margur er þar ofurhugi
í fyrsta skipti að nema land.

- Ferðafélagið

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica