Júní
Slökkvilið
Slökkvilið
Slökkvilið Hornafjarðar við æfingar (úr myndasafni)

22.06.2006 Júní

Allt er þegar þrennt er

Slökkvilið Hornafjarðar var kallað að Volaseli í Lóni rétt fyrir kl 19 í gærkvöldi. Við fengum tilkynningu um að kviknað væri í þvottahúsi á Volaseli sagði Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri og þegar við vorum komnir hálfa leið komu boð um að búið væri að ráða við eldinn. Þegar við komum á staðinn var mikill reykur í þvottahúsinu en heimilisfólkinu hafði tekist að slökkva eldinn með handslökkvitæki og síðan var þvottahús og geymsla reykræst. Líklegt er að kviknað hafi út frá rafmagni og skemmdir eru ekki miklar. Engar skemmdir urðu í íbúðinni og lítill reykur barst þangað.

Þetta er þriðja útkallið hjá slökkviliðinu á 11 dögum, fyrst var útkall um kl.03 að nóttu þegar skíðlogaði í ruslagámi við hliðina á vínbúðinni við Vesturbraut. Greiðlega gekk að slökkva í gámnum sem er mikið skemmdur. Steinþór sagði að öllu hefði munað að logn var því annars hefði eldurinn getað valdið miklu tjóni. Annað útkall var að íbúðarhúsi í Nesjahverfi vegna elds í þvottahúsi og þar varð mikið tjón á öllu húsinu. Þriðja útkallið var svo í Volasel og vonandi gildir máltækið ,,allt er þegar þrennt er?? í þessu svo ekki verði fleiri útköll að sinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica