Fjöldi ferðamanna vill kaupa fisk á grillið
Bestfiskur ætlar í sumar að vera með opna fiskbúð (Best-Fiskbúðin) tvisvar í viku á mánudögum og föstudögum frá kl 11-12 og 13-17. Þetta er ekki síður þjónusta fyrir ferðafólk sem heimsækir Hornafjörð en þá sem hér búa, segir Sívar Árni Scheving framkvæmdastjóri Bestfisks, því það kemur fjöldi ferðamanna til okkar á sumrin sem vill kaupa fisk á grillið. Nú ætlum við sem sagt að vera með allskonar fisk tilbúinn á grillið s.s. humar, þorsk, keilu, eitthvað af skötusel og fisk-grillrétti, eins verðum við með saltfisk, saltaðar kinnar og nýja ýsu. Við verðum með grill og grillaðstöðu hér úti þar sem ferðafólk getur skellt fiskinum beint á grillið og notið á meðan hins óviðjafnanlega útsýnis sem við höfum hér, hvort sem það eru jöklarnir, fjöllin eða að fylgjast með lífinu við höfnin.
Bestfiskur verður að venju með grillaðan humar og fleira góðgæti á humarhátíðinni sem örugglega mun kitla bragðlauka hátíðargesta og þar er Sívar Árni löngu búinn að sanna matreiðsluhæfileika sína.





Skrifa athugasemd