Júlí
Stafaganga í Almannaskarði
Almannaskarð
Stafaganga í Almannaskarði (úr myndasafni)
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

04.07.2006 Júlí

Almannaskarð góð gönguleið

Eftir að bílaumferð lagðist að mestu niður um veginn í Almannaskarði hefur þessi leið verið vinsæl gönguleið sem reynir vel á þol og þrek. Þegar kemur upp á brún skarðsins er tilvalið að halda áfram niður Skarðsdalinn að Almannaskarðsgöngunum að norðan og ganga svo sömu leið til baka því umferð gangandi fólks um göngin er bönnuð. Algengt er að gangan upp á brún Almannaskarðs, sem er í 170m. hæð, taki frá ca. 12-20 mínútur. Matthildur Ásmundardóttir sjúkraþjálfari sem kennir og þjálfar fólk í stafgöngu notaði veðurblíðuna í gær ásamt konum sem eru á námskeiði hjá henni til að fara svona smá aukaferð, eins og hún orðaði það, upp skarðið og fóru þær létt með það.

Matthildur hefur haldið nokkur stafgöngunámskeið á Höfn og segir hún að þátttaka hafi verið góð, fólk sé orðið mikið meðvitaðra um hvað útivera og góð hreyfing sé nauðsynleg. Ein göngukonan sagði að stafganga væri ótrúlega góð og áhrifamikil aðferð til að styrkja sig og efla en það þyrfti að læra að nota stafina rétt til að ná tilætluðum árangri.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica