Hornfirðingar í Ung í Norden
Dagana 26. júní til 3. júlí tóku átján ungir listamenn á aldrinum 14-16 ára frá sjö bæjarfélögum á Íslandi þátt í menningarmótinu Ung i Norden og hittu þar rúmlega 200 aðra norræna unglinga. Mótið var haldið í Þórshöfn í Færeyjum. Ung i Norden var nú haldið í fimmta sinn en mótið er haldið annað hvert ár á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Löndin sem tóku þátt eru frá Grænlandi í vestri til Finnlands í austri og frá Danmörku í suðri til Samalands í norðri og allt þar á milli. Íslensku þátttakendurnir komu frá Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjum, Reykjanesbæ, Grindavík, Hafnarfirði, Kópavogi og Ísafirði.Hornfirsku þátttakendurnir voru Jóhann Kristófer Antonsson og Sólveig Morávek Jóhannsdóttir. Jóhann tók þátt í ljósmyndasmiðju og Sólveig var í leiklistarsmiðju. Bæði eru þau nemendur í Tónlistarskólanum á Höfn.
Menningarmótið Ung i Norden er sannkölluð listasprengja og unglingum gafst gott tækifæri til að koma list sinni á framfæri: Undir stjórn Söru Guðmundsdóttur æfði íslenski hópurinn 20 mínútna atriði í menningarhúsinu Gamla Bókasafninu í Hafnarfirði helgina fyrir ferðina. Atriðið vakti mikla athygli í Færeyjum og meðal annars birtist mynd og umfjöllun um atriðið í einu útbreiddasta dagblaði Færeyja, Sosialnum. Listasmiðjurnar 16 sem unga fólkið tók þátt í á mótinu, undir stjórn atvinnulistamanna, unnu svo saman að þremur stórum atriðum sem voru flutt í Norðurlandahúsinu síðasta daginn. Auk þess voru svokölluð opin svið þar sem unglingarnir flutt atriði, ýmist einir og sér eða unnu með öðrum vinum sínum, bæði íslenskum og erlendum. Því var leitað eftir ungu fólki sem kann ýmislegt fyrir sér á sviði lista.
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar (ÍTH) sá um verkefnið fyrir Íslands hönd og hefur gert undanfarin ár að beiðni menntamálaráðuneytisins. Fararstjórar voru Andri Ómarsson, nemi í tómstunda- og félagsmálafræði, Árni Guðmundsson, æskulýðsfulltrúi í Hafnarfirði, og Sara Guðmundsdóttir, leik- og söngkona. Fararstjórarnir blogguðu daglega meðan á ferðinni stóð og fluttu foreldrum og öðrum áhugasömum fréttirnar af því hvernig gekk á http://unginorden.blogspot.com.





Skrifa athugasemd