Júlí
Mastrid_vidtal
Mastrid_vidtal
Rætt verður við ferðaþjónustuaðila í Mastrinu

19.07.2006 Júlí

Tékka á lífsmarki innan ferðamannaiðnaðarins

Það er gott að búa á Höfn, því þar eru miðvikudagskvöld betri en önnur kvöld. Hornfirðingar eru góðu vanir á miðvikudagskvöldum og er engin breyting á því núna því Mastrið mætir á Skjávarps-skjáinn kl.20:00 í kvöld eins og bæði lærðir og leiknir ættu að vita. Þátturinn í kvöld er sprengfullur bæði af fréttnæmu og jafnframt ó-fréttnæmu efni, sem þó er athyglisvert. Útsendarar Mastursins tékka á lífsmarkinu sem er innan ferðamannaiðnaðarins hér í bæ og ræða m.a við Huga á tjaldsvæðinu. Hugi uppljóstrar í því viðtali hvaða þjóðir eru leiðinlegastar og erfiðastar að eiga við á tjaldsvæðinu. Þá er skemmst frá því að segja að fréttasnápur Mastursins skoðar fornleifafundinn sem fannst við rætur Hafnarbúðarinnar fyrr í vikunni. Vítaspyrnukeppni Mastursins rúllar áfram og er alls ekki útséð hver ber höfuð og herðar yfir aðrar vítaspyrnukempur hér í sveit, en í kvöld eigast við fótboltamógúlarnir Miralem Haseta eða Mica og Árni Þorvaldsson formaður í fleirtölu.

Strákarnir hjá TóbasFilm, þeir Ásgrímur Ara og Óli Albert eru auðvitað með sitt vikulega innlegg og verður gaman að sjá hvaða álegg þeir verða með þessa vikuna. Nei, þetta er ekki tæmandi talning á því efni sem verður á Skjávarpinu í kvöld, því þátturinn hefur mikið, margt og meira uppá að bjóða en það sem fram hefur komið hér, þetta verður því hamslaus, skinnlaus og taumlaus gleði í kvöld á Skjávarpinu. Gerið svo vel góðir bæjarbúar og takið ykkur sæti fyrir framan kassann í kvöld og njótið vel.

Mastrið yfir bænum gnæfir,
þvælan, bullið og blaðrið.
Þeir eru ei húsum hæfir,
Mastrið, þar er þvaðrið!

Gísli Reynis Schramm, forsetafrú Mastursins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica