Kynnisferð í ísklifri á Svínafellsjökli í Öræfum
Fyrir nokkru síðan buðu Íslenskir fjallaleiðsögumenn í Skaftafelli starfsfólki hjá ferðaþjónustuaðilum í kynnisferð í ísklifri á Svínafellsjökli í Öræfum. Við fórum saman 5 frænkur sem meira og minna vinnum á tjaldstæðinu á Höfn. Við byrjuðum á því að keyra í Skaftafell þar sem að við fengum viðeigandi útbúnað, þ.e. brodda og ísöxi. Síðan var haldið að Svínafellsjökli og gengið upp á jökultungu hans. Þarna var hægt að skoða mismunandi form á jöklinum og litirnir voru mismunandi frá einni ísblokkinni til annarrar. Auk þess kíktum við ofan í jökulsprungur og svelgi.
Þessi jöklaganga var frekar létt og í slíka ferð ættu flestir að komast. Þetta er afþreying og sport sem óhætt er að mæla með fyrir ferðafólk og heimamenn.
Takk fyrir okkur
Rannveig, Þorbjörg, Lena, Selma og Fanney.




Skrifa athugasemd