Júlí
Fjölbreytt og hressandi Mastur í kvöld
Þátturinn í kvöld verður með besta móti. Allt að gerast hjá strákunum og fallhæðin af Mastrinu orðin gríðarleg. Hljóð- og tökumaðurinn stendur sig með miklum ágætum í kvöld. Það sem uppá verður boðið í þessum þætti er mjög fjölbreytt og hressandi. Gísli Reynis fór með vélina og hljóðneman og hitti fyrir nokkra krakka úr vinnuskólanum og spjallaði létt við þá á svokölluðu rústadiskó-i. Pylsu-át, vítaspyrnukeppni og almennt rugl verður ráðandi í þættinum að ógleymdum krökkunum, en Steinar K spjallar við yngstu kynslóðina um daginn og veginn.
Takið ykkur stöðu,
Viðbúin.
Obbossí ? Mastrið fer að byrja.
- Mastursmenn





Skrifa athugasemd