Ágúst
Haustlitaferðin í Bægistaðaskóg
Haustlitaferðin í Bægistaðaskóg 2006
Hópmynd teknin í Breiðuvík 2006 (@Anna Halldóra)

01.08.2006 Ágúst

Haustlitaferðin verður í Bæjarstaðaskóg

Góð aðsókn hefur verið í ferðir Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu það sem af er sumri segir formaðurinn Rannveig Einarsdóttir. Við höfum yfirleitt verið mjög heppin með veður og aldrei þurft að breyta ferðaáætlun. Næsta ferð okkar verður í Álftafjörð 11. ágúst þar sem farið verður á bílum inn í Múladal og gengið þaðan yfir í og út Hofsdal. Þetta er þriggja skóa ganga sem tekur um sex tíma. Þetta er stórbrotin og falleg leið og auðveld öllum sem eitthvað stunda gönguferðir.

Haustlitaferðin vinsæla verður að þessu sinni farin 16. sept.í Bæjarstaðaskóg í Öræfum og það ætti enginn að verða fyrir vonbrigðum með litadýrð haustsins á þeim slóðum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica