Ágúst
Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur
Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur
Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur á skrifstofu sinni í frumkvöðlasetrinu í Nýheimum.
Mynd 1 af 2
1 2

22.08.2006 Ágúst

Þórey Bjarnadóttir nýr starfsmaður hjá Búnaðarsambandi Suðurlands

Nýr starfsmaður, Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur er komin til starfa hjá Búnaðarsambandi Suðurlands með starfsaðstöðu í Nýheimum. Þórey er Suðursveitungur, fædd og uppalin á Kálfafelli í Suðursveit, hún lauk búvísindanámi frá Hvanneyri og síðan mastersnámi í fóðurfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands og fjallaði lokaverkefni hennar um sumarbeit sauðfjár. Þórey segir að nýja starfið leggist vel í sig og hún hlakkar til að takast á við þau verkefni sem því fylgja. Ég er ráðin í þetta í eitt ár, kem í stað Fanneyjar Ó. Lárusdóttur sauðfjárræktarráðanauts á Kirkjubæjarklaustri sem er í fæðingarorlofi. Ég vinn því á landbúnaðarskrifstofunni á Klaustri tvo daga í viku fram á haustið en eftir það verð ég lítið við á skrifstofunum bæði þar og hér, því þá verð ég á ferð og flugi um allt Suðurland og Skaftafellssýslur að skoða og meta líflömb bænda ásamt fleiri starfsmönnum Búnaðarsambands Suðurlands. Milli 11-12 þúsund ær eru skýrslufærðar í Austur-Skaftafellssýslu.

Þórey býr á Kálfafelli, segist engu bundin nema starfinu og hún segist hlakka til að kynnast bændum og búaliði á svæðinu og takast á við þetta spennandi og fjölbreytta starf. Grétar Þorkelsson, sem verið hefur starfsmaður Búnaðarsambands Suðurlands á Höfn í nokkur ár, fagnar komu Þóreyjar í starfið og hefur góða von um að þetta verði framtíðarstaða hér á staðnum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica