Skinney-Þinganes hefur keypt útgerðarfyrirtækið Langanes hf á Húsavík
Skinney-Þinganes hefur keypt útgerðarfyrirtækið Langanes hf á Húsavík. Skrifað var undir samning um kaupin í gær 22.ágúst og með þeim eignast Skinney-Þinganes skipin Björgu Jónsdóttur ÞH-321 og Bjarna Sveinsson ÞH-322 ásamt aflaheimildum. Björg Jónsdóttir er stálskip, smíðuð í Flekkefjord í Noregi 1975, lengd 70.67m, stærð1741.5 brúttótonn. Bjarni Sveinsson er stálskip, smíðaður á Akureyri 1978, lengd 63.85m og stærð 957.0 brúttótonn. Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður Skinneyjar-Þinganess segi að ekki sé búið að taka neina ákvörðun um framtíð skipanna hjá fyrirtækinu, við vorum að koma heim í gærkvöldi en þetta skýrist allt fljótlega. Skipin verða afhent nýju eigendunum um mánaðarmót sept.-okt. næstkomandi.
Skinney-Þinganes hefur gert samning um smíði á tveim 29m löngum fiskiskipum í Taiwan og segir Gunnar að nú sé byrjað að efna niður í skipin og menn frá þeim fari á næstunni út til að fylgjast með smíðinni. Fyrra skipið á að afhenda í lok janúar 2007 og hitt skipið sex vikum seinna





Skrifa athugasemd