Ágúst
Jokulsarlon_Frank Schulze
Jokulsarlon_Frank Schulze
Jokulsarlon_Frank Schulze (Mynd ÁgústE)

24.08.2006 Ágúst

Ferðast á handknúnum hjólastól

Það vakti óneytanlega athygli þegar ungur maður á handknúnum hjólastól kom á Þjónustumiðstöðina á Höfn fyrir helgina síðustu, fór svo á tjaldsvæðið og setti upp tjald sitt sjálfur þrátt fyrir mikla fötlun. Þetta var Frank Schulze 23 ára sem kemur frá Þýskalandi. Frank fæddist fótalaus en er með smá stúfa og getur gengið um á þeim. Hann er að læra medical BIO Techhnology í háskóla í Berlín þar sem hann á heima. Aðspurður að því hvað hann fengi hann til að fara í svona ferðalag sagði hann að það væri góð spurning þar sem þetta væri óttalegt vesen og virkilega erfitt þar sem stóllinn væri alltaf að bila, en svo kæmi á móti hversu gefandi þetta væri og Ísland væri mög fallegt. Hann hefur komið áður til Íslands en það var fyrir tveim árum og hélt sig þá á suðvesturhorni landsins og fór Gullfoss og Geysis rúntinn á stólnum. Frank er mjög handsterkur og segir að stóllinn sé sérstaklega á hannaður til að komast ferða sinna einungis á handafli. Hann segir að ökumenn séu tillitsamir og sumur heilsa honum og segir hann það oft lyfta sér upp þegar hann er orðinn þreyttur.

Frank kom til landsins sunnudaginn 13. júlí og tók þá rútu til Akureyrar og hélt svo þaðan á austurlandið og sagðist hafa lent í miklu roki á leiðinn. Hann vildi ekki fara gegnum Almannaskarðsgöngin heldur fór hann gamla veginn yfir Almannaskarð.
Frank vildi að lokum segja að þótt ferðin væri erfið væri alltaf fólk til að hjálpa honum t.d þegar stóllinn hafði bilað þá þurfti hann að ferðast á puttanum og þá eru það alltaf Íslendingar sem koma honum til hjálpar sérstaklega vildi hann þakka Gesti Halldórssyni á smurstöðinni á Höfn fyrir alla hjálpsemina en hann reddaði honum dekki á stólinn.

-ÁE

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica