Ágúst
Efnalaug Dóru
Efnalaug Dóru
Það er mikið að gera í Efnalauginni. Halldóra Ingólfsdóttir ásamt Helgu Hlín Bjarnadóttur.

30.08.2006 Ágúst

Þvegið af rúmlega 500 rúmum á dag

Efnalaug Dóru á Höfn hefur fært út starfsemi sína í sumar með þvottaþjónustu við ferðaþjónustustaðina á svæðinu. Þetta er heilmikil þjónusta sem hefur bæst við hjá okkur í sumar segir Halldóra Ingólfsdóttir eigandi efnalaugarinnar, við sjáum um þvotta fyrir Hótel Skaftafell í Freysnesi, færum þeim þvottinn og tökum svo þvott á sex ferðaþjónustustöðum í bakaleiðinni. Þessi þjónusta er alla daga yfir ferðaþjónustutímann og í sumar hefur þetta verið sængurfatnaður af rúmlega 500 rúmum á dag. Vinnan í efnalauginni byrjar kl. sex á morgnana til að geta komið þvottabílnum af stað í Freysnes og sveitirnar um kl 11.00 en þessi leiðangur á alla staðina tekur um fjóra tíma. Þetta er fyrsta sumarið sem ferðaþjónustuaðilarnir á svæðinu hafa nýtt sér þjónustu efnalaugarinnar að undanskyldu gistiheimilinu á Brunnhól sem er eini staðurinn utan Hafnar sem við höfðum þvottana fyrir.

Ég á von á að þessi starfsemi eigi eftir að vaxa og dafna með aukinni ferðaþjónustu og fleiri gististöðum á svæðinu segir Halldóra, þetta munar miklu fyrir þessa aðila að þurfa ekki að vera með starfsfólk til að sjá um þvottana og geta sparast upp í 2-3 störf á stað auk þess að þurfa ekki að sjá þeim starfsmönnum fyrir húsnæði og fæði á stöðum sem eru utan þéttbýlisins. Í Efnalaug Dóru vinna sjö manns og þar er unnið jafnt virka daga sem helga en vélakostur er góður, konurnar útsjónarsamar og skipulagðar svo verkin ganga fljótt og vel.
Starfsemi efnalaugarinnar snýst ekki aðeins um ferðaþjónustu og við höfum marga fasta viðskiptavini hér á Höfn og svo er þessi almenna fatahreinsun svo það er alltaf næg verkefni.
Aðspurð sagðist Halldóra ekki vera farin að útvíkka atvinnusvæðið til austurs en sagðist þó vera tilbúin að skoða það ef til kæmi eins með Kirkjubæjarklaustur.
Ljóst er að fyrir næsta sumar þarf meiri og betri skipulagningu til að öll þjónusta geti gengið sem best, eins þarf að stækka það pláss sem efnalaugin er í og það er til staðar hér í húsinu.
Ég er bjartsýn á framtíðina og ég held að þetta eigi fyrir sér að vaxa og dafna og vona að fólk reyni að nýta sér sem best þá þjónustu sem við getum veitt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica