Sveitarfélagið Hornafjörður - Ágúst
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
    <ttl>40</ttl>
Námsferð til Þýskalands
      <description>Snemma í sumar héldum við, ásamt 12 þýskunemendum úr VA og ME, til Trier í Þýskalandi. Þetta var samstarfsverkefni milli framhaldsskólanna á Austurlandi, þar sem að við fórum og heimsóttum skóla í Þýskalandi og kynntumst menningunni og málinu aðeins betur.   Við flugum út frá Egilsstöðum þann 15.maí, en þetta var langt og strangt ferðalag, þar sem að við flugum fyrst til Kaupmannahafnar og síðan til London áður en við lentum á Frankfurt Hahn. Ævintýrin byrjuðu strax þar sem að allir fengu ekki farangurinn sinn þegar við lentum í London.  Þegar við vorum lent í Frankfurt tóku Þjóðverjarnir, sem við bjuggum hjá næstu tvær vikurnar, á móti okkur. Eftir klukkutíma keyrslu vorum við loksins komin á leiðarenda eftir 17 tíma ferðalag. Trier er elsti bærinn í Þýskalandi og hefur að geyma byggingar frá tímum rómverja, og var miklum tíma eytt í að skoða svæðið.</description>
Útskrifuðust sem ferðamálafræðingar
      <description>Guðrún Jónsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir útskrifuðust, þann 25 ágúst sem ferðamálafræðingar með diploma, landavarðar og staðarvarðarréttindi frá Háskólanum á Hólum. Námið er mjög fjölbreytt, þar er m.a. komið inn á landbúnaðar- og menningartengdaferðaþjónustu. Tekið er á umhverfismálum, gestamóttöku, afþreyingu og útivist, bókhaldi og rekstri o.fl. Markmiðið er að veita nemendum hagnýtt og vandað starfsnám á háskólastigi og stuðla að eflingu ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar á landsbyggðinni. Í dag eru þrír nemendur sem stunda þegar nám frá Hornafirði við Háskólann á Hólum, og útskrifast þeir næsta sumar. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur þá er námið mjög skemmtilegt og gefandi enda svæðið hér í Ríki Vatnajökuls mjög spennandi til að vinna að ferðamálum.</description>
      <alt>Útskrifuðust sem ferðamálafræðingar</alt>
Þvegið af rúmlega 500 rúmum á dag
      <description>Efnalaug Dóru á Höfn hefur fært út starfsemi sína í sumar með þvottaþjónustu við ferðaþjónustustaðina á svæðinu.  Þetta er heilmikil þjónusta sem hefur bæst við hjá okkur  í sumar segir Halldóra Ingólfsdóttir eigandi  efnalaugarinnar, við sjáum um þvotta fyrir Hótel Skaftafell í Freysnesi, færum þeim þvottinn og tökum svo þvott á sex ferðaþjónustustöðum í bakaleiðinni. Þessi þjónusta er alla daga yfir ferðaþjónustutímann og í sumar hefur þetta verið sængurfatnaður af rúmlega 500 rúmum á dag. Vinnan í efnalauginni byrjar kl. sex  á morgnana til að geta komið þvottabílnum af stað í Freysnes og sveitirnar um kl 11.00 en þessi leiðangur á alla staðina tekur um fjóra tíma. Þetta er fyrsta sumarið sem ferðaþjónustuaðilarnir á svæðinu hafa nýtt sér þjónustu efnalaugarinnar að undanskyldu gistiheimilinu á Brunnhól sem er eini staðurinn utan Hafnar sem við höfðum þvottana fyrir.</description>
      <alt>Efnalaug Dóru</alt>
Aðalfundur félags ungra sjálfstæðismanna
      <description>Aðalfundur Skaftfellings, félags ungra sjálfstæðismanna, verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í kvöld þriðjudaginn 29. águst. Á fundinum fara fram venjuleg aðalfundarstörf ásamt kosningu fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs. Ungt fólk hefur sett mikinn svip á starfsemi sjálfstæðismanna í  héraðinu síðustu ár og hefur framlag þeirra í kosningabáráttunni verið mikilvægt. Ljóst er að einhver endurnýjum verður á stjórn félagsins og þess vegna æskilegt að þeir sem áhuga hafi á að taka þátt í stjórnarstörfum láti stjórnarmenn vita af sér og mæti á fundinn.</description>
      <alt>Höfn</alt>
Ný frystigeymsla
      <description>Skinney-Þinganes hefur undirritað samning við Íslenska aðalverktaka um byggingu 4000 tonna frystigeymslu. Vinna við grunn fyrir bygginguna er hafin en áætluð verklok eru 1. febrúar 2007. Að sögn Gunnars Ásgeirssonar hjá Skinney-Þinganesi var ákveðið að loka ekki í fyrirtækinu í ágúst vegna sumarleyfa fastráðna starfsfólksins, eins og gert hefur verið, heldur gefa unglingum kost á vinnu meðan þeir fastráðnu færu í frí. Þetta hefur gefist vel og þessir unglingar hafa staðið sig með prýði og eru góðir starfsmenn segir Gunnar.</description>
Ferðast á handknúnum hjólastól
      <description>Það vakti óneytanlega athygli  þegar ungur maður á handknúnum hjólastól kom á Þjónustumiðstöðina á Höfn fyrir helgina síðustu, fór svo á tjaldsvæðið og setti upp tjald sitt sjálfur þrátt fyrir mikla fötlun. Þetta var Frank Schulze 23 ára  sem kemur frá  Þýskalandi. Frank fæddist fótalaus en er með smá stúfa og getur gengið um á þeim. Hann er að læra medical BIO Techhnology í háskóla í Berlín þar sem hann á heima. Aðspurður að því hvað hann fengi hann til að fara í svona ferðalag sagði hann að það væri góð spurning þar sem þetta væri óttalegt vesen og virkilega erfitt  þar sem stóllinn væri alltaf að bila, en svo kæmi á móti hversu gefandi þetta væri og Ísland væri mög fallegt. Hann hefur komið áður til Íslands en það var fyrir tveim árum og hélt sig þá á suðvesturhorni landsins og fór Gullfoss og Geysis rúntinn á stólnum. Frank er mjög handsterkur og segir að stóllinn sé sérstaklega á hannaður til að komast ferða sinna einungis á handafli. Hann segir að ökumenn séu tillitsamir  og sumur heilsa honum og segir hann það oft lyfta sér upp þegar hann er orðinn þreyttur.</description>
Skinney-Þinganes hefur keypt útgerðarfyrirtækið Langanes hf á Húsavík
      <description>Skinney-Þinganes hefur keypt útgerðarfyrirtækið Langanes hf á Húsavík. Skrifað var undir samning  um kaupin í gær 22.ágúst og með þeim eignast Skinney-Þinganes skipin Björgu Jónsdóttur ÞH-321 og Bjarna Sveinsson ÞH-322 ásamt aflaheimildum. Björg Jónsdóttir er stálskip, smíðuð  í Flekkefjord í Noregi 1975, lengd 70.67m, stærð1741.5 brúttótonn. Bjarni Sveinsson er stálskip, smíðaður á Akureyri 1978, lengd 63.85m  og  stærð 957.0 brúttótonn.  Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður Skinneyjar-Þinganess segi að ekki sé búið að taka neina ákvörðun um framtíð skipanna hjá fyrirtækinu, við vorum að koma heim í gærkvöldi en þetta skýrist allt fljótlega. Skipin verða afhent nýju eigendunum um mánaðarmót sept.-okt. næstkomandi.</description>
Þórey Bjarnadóttir nýr starfsmaður hjá Búnaðarsambandi Suðurlands
      <description>Nýr starfsmaður, Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur er komin til starfa hjá Búnaðarsambandi Suðurlands með starfsaðstöðu í Nýheimum. Þórey er Suðursveitungur, fædd og uppalin á Kálfafelli í Suðursveit, hún lauk búvísindanámi frá Hvanneyri og síðan mastersnámi í fóðurfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands og  fjallaði lokaverkefni hennar um sumarbeit sauðfjár. Þórey segir að nýja starfið leggist vel í sig  og hún hlakkar til að takast á við  þau verkefni sem því fylgja. Ég er ráðin í þetta í eitt ár,  kem í stað Fanneyjar Ó. Lárusdóttur sauðfjárræktarráðanauts á Kirkjubæjarklaustri sem er í fæðingarorlofi. Ég vinn því á landbúnaðarskrifstofunni á Klaustri  tvo daga í viku fram á haustið en eftir það verð ég lítið við á skrifstofunum bæði þar og hér, því þá verð ég á ferð og flugi um allt Suðurland og Skaftafellssýslur að skoða og meta líflömb bænda ásamt fleiri starfsmönnum Búnaðarsambands Suðurlands. Milli 11-12 þúsund ær eru skýrslufærðar í Austur-Skaftafellssýslu.</description>
      <alt>Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur</alt>
Mikið af bláberjum og krækiberjum
      <description>Eftir því sem fregnað hefur verið frá ýmsum stöðum sunnan og austan Hafnar er berjaspretta mjög góð. Heimildarmaður vefsins á Stöðvarfirði sagðist aldrei hafa séð eins mikið af krækiberjum og er núna og eins væri mjög mikið af bláberjum og aðalbláberjum en þau væru varla nógu þroskuð ennþá, fín eftir nokkra daga. Mikið er af krækiberjum austan við Kolgrímu og eins í Suðursveit. Krækiberjalyng hefur breitt sig út um aurana í Suðursveit, Mýrum og Lóni og þar er víða mikið af berjum. Magnús Lárusson sem er manna fróðastur um berjasprettu, er búinn að týna mikið af berjum og segir víða mikið bæði af bláberjum og krækiberjum hér í sýslunni.</description>
Gömlu röntgentækin tekin niður til að rýma fyrir nýju
      <description>Nú hillir undir að röntgenmyndatökumál Heilbrigðisstofnunar Suð-Austurlands séu að komast á lokastig þar sem tækjabúnaður er tilbúinn til afhendingar. Nú er verið að taka niður og fjarlægja gömlu vélarnar og framköllunartækin einnig verður veggur inn í framköllunarherbergið fjarlægður þar sem ekki er lengur þörf á slíku plássi segir Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSSA. Þegar plássið verður tilbúið koma starfsmenn frá Raferninum í Reykjavík og setja tækin upp einnig  kemur leiðbeinandi um notkun tækjanna frá framleiðanda þeirra á Ítalíu. Áætlað er að þetta ferli taki þrjár vikur segir Guðrún Júlía og á meðan getum við ekki tekið röntgenmyndir og munum því senda fólk til myndatöku ef þarf.</description>
Þegar komið var upp á Háás blasti grösugur og kjarri vaxinn Hofsdalurinn við
      <description>Föstudaginn 11. ágúst fór Ferðafélagið í göngu og jeppaferð inn Múladal í Álftafirði og kom til baka fram Hofsdal. Farið var á 3 jeppum alls 23 manna hópur. Þegar komið var langleiðina inn Múladal ókum við fram á tvo erlenda ferðamenn sem höfðu sett bílinn sinn á bólakaf í drullupytti. Þeir urðu mjög glaðir að sjá okkur, því að þeir voru búnir að vera þarna fastir í tæpan sólarhring. Jeppamennirnir í hópnum urðu líka voða glaðir, því að nú fengu þeir tækifæri til að sýna getu jeppanna sinna, en því miður þá þurfti ekki nema einn til að draga þann fasta upp. Þegar komið var inn í botn dalsins lögðu 18 manns af stað gangandi yfir í Hofsdal undir öruggri fararstjórn Jóns Bragasonar sem þarna var á heimavelli, enda alltaf kenndur við Hof. Bjart var mestan hluta ferðarinnar og útsýni gott til fjalla og jökla. Mikið var af stórum hreindýrahjörðum í Hofsdal. Eftir 7 tíma göngu hittum við jeppamennina við enda vegslóðans í Hofsdal. Þegar komið var fram dalinn buðu hjónin á Rannveigarstöðum öllum hópnum í saltkjöt og baunir.</description>
Þetta var hreint út sagt alveg glæsilegt
      <description>Flugeldasýningin við Jökulsárlón sl. laugardag heppnaðist eins og best varð á kosið. Fjöldi fólks mætti á staðinn og naut stórfenglegrar sýningar í yndislegu veðri. Þetta var hreint út sagt alveg glæsilegt sagði Grétar Þorkelsson lögreglumaður og það er nú svo með hann Einar Björn hann á erfitt með að hætta svo sýningin varð enn stórfenglegri og hann og hans fólk á heiður skilið fyrir framtakið. Kertaljós vörðuðu veginn frá þjóðveginum að þjónustuskálanum og flugeldum var skotið upp víðsvegar um lónið og skothvellirnir bergmáluðu tröllslega svo hávaðinn var yfirþyrmandi  en hápunktur sýningarinnar var ljósafossinn af Jökulsárbrúnni sem var alveg ótrúlega flottur.</description>
35 ára afmæli og vígsla á nýjum Silfurnesvelli
      <description>Undanfarin ár hafa staðið yfir framkvæmdir á Silfurnesvelli á Hornafirði sem fela í sér breytingu og stækkun vallarins. Í ágúst 2001 var skrifað undir samning við Sveitafélagið Hornafjörð það sem m.a. er kveðið á um að sveitarfélagið styrki framkvæmdina með 20 milljón króna framlagi sem greiðist á tíu árum. Í framhaldinu var gengið frá fjármögnun framkvæmdanna m.a. með samningi við Landsbanka Íslands.Skipuð var framkvæmdanefnd úr hópi klúbbfélaga vegna verksins og í henni sitja Sigurður Grétar Ragnarsson, Hákon Gunnarsson, Ari Jónsson og Valur Sveinsson. Samið var við golfvallarhönnuðinn Edvin Rögnvaldsson um hönnun vallarins.  Ýmsir verktakar komu að verkinu og má nefna Ólaf Halldórsson verktaka og Gróðrarstöðina í Dilksnesi. Klúbbfélagar lögðu einnig sitt af mörkum í uppbyggingunni með sjálfboðavinnu.</description>
Merkti 600 kríuunga við Jökulsárlón
      <description>Kríuvarp hefur verið í miklum blóma við Jökulsárlón í sumar og meira varp en í fyrra segir Björn Arnarson fuglaáhugamaður. Kríurnar hafa haft hér nóg æti því mikið af sandsíli hefur verið við og uppí ósnum og því stutt fyrir þær að ná í fæðuna. Varpið er á sama svæði og áður og einnig hefur það teygt sig lengra til austurs. Mikið var um eggjatekju frá kríunni í sumar en það virðist ekki hafa haft mikið að segja því varpið er óvenju þétt og afkoman góð. Kríuvarp í Óslandi gekk vel og eru nær allar kríur farnar. Björn er búinn að merkja 600 kríuunga við lónið í sumar og einnig nokkra skúmsunga á Breiðamerkursandi.</description>
40 sæti laus til Tallinn í Eistlandi í beinu flugi frá Egilsstöðum
      <description>Um 300 starfsmenn Skinney-Þinganes og makar þeirra halda til Tallin í Eistlandi frá Egilsstöðum í lok þessa mánaðar og munu þeir dvelja í borginni í 5 daga (31. ágúst til 4. september). Um er að ræða 70 ára afmælisferð Skinney-Þinganess og því hefur ferðaskrifstofan Trans-Atlantic sem sér um ferðina gert hana veglegri en aðrar ferðir þangað af því tilefni. Gamli bærinn í Tallinn  er frá 11. öld og  er borgin talin ein af fegurstu borgum Evrópu. Tallinn er á minjalista UNESCO  sem ein best varðveitta miðaldaborg Evrópu. Ferðir Trans-Atlantic  til Tallinn hafa verið mjög vinsælar hjá Íslendingum undanfarið ár og er þar að finna margt sem heillar ferðalanginn svo sem kastala, hallir, þröngar steini lagðar götur, skemmtistaði, verslanir og veitingahús. Veðurfar í borginni á þessum árstíma er mjög gott og má búast við yfir 20 stiga hita.</description>
      <alt>Tallin</alt>
Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis kaupir húsnæði Landsbankans á Djúpavogi og Breiðdalsvík.
      <description>Landsbanki Íslands hf. og Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis hafa gert samkomulag um kaup Sparisjóðs Hornafjarðar á húsnæði Landsbankans á Breiðdalsvík og Djúpavogi. Samhliða því mun Landsbanki Íslands hf. hætta rekstri afgreiðslna sinna á þessum stöðum frá 1. september n.k. en starfsemi afgreiðslanna flyst til útibúa bankans á Stöðvarfirði og Hornafirði. Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis mun frá 1. september n.k. starfrækja afgreiðslur á Breiðadalsvík og Djúpavogi og jafnframt taka við rekstri póstafgreiðslu Íslandspósts á Breiðdalsvík. Núverandi starfsmönnum Landsbankans á Breiðdalsvík og Djúpavogi hafa verið boðin störf hjá Sparisjóðnum frá sama tíma.</description>
      <alt>Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis</alt>
Flugeldasýningin verður n.k. laugardagskvöld
      <description>Hin árlega flugeldasýning að Jökulsárlóni verður haldin n.k. laugardag og hefst sýningin á miðnætti. Að sögn Einars Björns Einarssonar staðarhaldara þá verður sýningin í ár með svipuðum hætti og undanfarin ár. Flugeldum er skotið upp af jökum vítt og bereitt um lónið og við það skartar það sínu fegursta. Aðgangseyrir að sýningunni er kr.500 fyrir fullorðna en frítt fyrir krakka. Allur ágóði af sýningunni rennur óskiptur til Björgunarfélags Hornafjarðar. Búist er við miklum fjölda gesta á sýninguna og vill Einar Björn beina því til þeirra sem ætla að koma að mæta tímanlega á svæðið því umferð getur orðið þung. Eins vill hann beina því til ökumanna að slökkva bílljósum þegar búið er að leggja bílnum á svæðinu.</description>
Sanddæluskip í Hornafjarðarhöfn
      <description>Sanddæluskipið Skandía vinnur núna að dýpkun innri hafnarinnar á Hornafirði einnig var lítilsháttar lagfæring gerð við hafnaraðstöðuna við Austurfjörur. Sigfús Harðarson hjá Hornafjarðarhöfn segir að samningar samkvæmt útboði vera upp á losun 20 þúsund rúmmetra efnis úr höfninni á þessu ári. Margir hafa furðað sig á að sanddæluskipið siglir norður álinn milli Mikleyjar og Álaugareyjar til að dæla úr sér og spyrja hvort þetta fari ekki allt með strauminum til baka inn í höfnina. Sigfús segir að svo sé ekki álitið þar sem mest af þessu sem upp kemur sé leir en ekki sandur.</description>
Hvalir svamla við Jökulsárlón
      <description>Það hefur verið baðstrandar stemning í veðurblíðunni við Jökulsárlón og Jökulsárós síðustu daga og hvalir hafa svamlað rétt við ósinn. Fólk hefur notið þess að fylgjast með þessum glæsilegu skepnum þegar þær gæða sér á sandsílum sem mikið er af  þar og kríurnar taka fullan þátt í baráttunni um ætið. Fjöldi fólks hefur komið að Jökulsárlóni  undanfarið og er aðsókn að siglingum um lónið heldur meiri en í fyrra þegar gestir voru hátt í 45 þúsund sem var metár og er Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón bjartsýnn á að metið frá í fyrra verði slegið núna. Mest hafa 840 manns farið í siglingu á einum degi í sumar og þegar mest aðsókn er þarf að vera með öll hjólaskipin fjögur í siglingu.</description>
      <alt>Jökulsárlón</alt>
Fannst hrakinn og þrekaður í morgun
      <description>Maður sem leitað var að í Skaftafelli fannst hrakinn og þrekaður rétt fyrir klukkan átta í morgun. Björgunarsveitarmenn á fjórhjólum fundu manninn um 5 km fyrir sunnan þjóðveg eitt, milli Skaftafellsár og Skeiðarár eftir að slóð hans fannst á söndunum. Ekkert hafði sést til mannsins frá því klukkan hálf tvö aðfararnótt mánudags. Viðbúnaður var mikill, um 170 björgunarsveitarmenn úr 25 sveitum, víða af landinu leituðu mannsins, bæði fótgangandi, sem og á fjór- og sexhjólum. Auk þess voru svæðisleitar- og sporhundar notaðir.</description>
      <alt>Skaftafell</alt>
Á slóðir álfa og trölla
      <description>Ferðafélag  A-skaft fór í árlega jeppa og gönguferð félagsins 21.-23. júlí s.k. Farið var á Borgafjörð-eystri og Loðmundafjörð. Fólk mætti á föstudagskvöldinu og kom sér fyrir. Þeir sem komu snemma fóru í kvöldgöngu um svæðið og höfðu gaman af, þó þoka væri. Á laugardeginum var farið í Loðmundarfjörð gangandi eða akandi eftir vild. Veðrið var mjög milt en þoka. Þeir sem ætluðu að labba, reimuðu gönguskóna og öxluðu bakpoka og bjuggust við langri vist á fjöllum vegna þoku. Gengið var um Kækjuskörð (Kækja þýðir tröllskessa)  til Loðmundarfjarðar undir leiðsögn Skúla Sveinssonar frá Borgarfirði-eystri, aðrir fóru akandi eftir jeppaslóð að Stakkahlíð. Ekki höfðum við gengið lengi er þokunni létti og það brast á með sólskini og hita. Á leiðinni upp Kækjudal skoðuðum við álfastein og álfakirkju. Af Kækjuskörðum blasti við heilu fjallgarðarnir með tröllslegum hnausum og mikilli litadýrð, einnig blasti Loðmundafjörður við grösugur og búsældarlegur. Héldum við áfram að Stakkahlíð þar sem jeppahópurinn beið okkar. Þá var ekið að Klyppstað og kirkjan skoðuð. (byggð 1895).</description>
Það er bjart yfir búskap bænda
      <description>Heyskap er víðast hvar lokið í Hornafirði a.m.k. fyrri slætti segir Grétar Þorkelsson starfsmaður Búnaðarsambandsins. Þurrkar hafa verið stopulir og fáir samfelldir sólardagar og væri rúllubakkaverkun ekki til hefði heyskapur verið erfiður í sumar en aðeins tvo þurrkdaga þarf til að hægt sé að hirða heyið í rúllur. Þeir  bændur sem byrjuðu slátt snemma hafa náð miklum og góðum heyjum því grasspretta er mikil og kannski fullmikil fyrir þá sem ekki byrjuðu slátt fyrr en í júlí. Mjög vel lítur út með kornrækt hér og er hún alltaf að aukast t.d. eru komnir þrír nýir kornræktendur í Lóni en stærstur í kornræktinni er Sæmundur bóndi í Árbæ með 20 hektara. Sæmundur nýtir kornið vel þar sem hann er kominn með svokallaðan heilfóðurbúnað  sem er mixer sem hey, fóðurbætir og korn er unnið saman í einskonar kúamúsli og þannig nýtist fóðrið til fulls.</description>
Síðasti þáttur Mastursins að sinni
      <description>Jæja gott fólk þá er komið að síðasta þætti Mastursins þetta sumarið og er þetta búið að vera alveg ógurlega gaman. Þátturinn í kvöld verður með æðislegu sniði eins og vanalega, verður meðal annars sett nýtt og glæsilegt Evrópumet í pylsuáti og Sævar verður með allt niðrum sig í markinu eins og honum er einum lagið. Ný hljómsveiti á Hornafirði? já það er rétt, við kíktum á æfingu hjá gæðingunum þar sem konungur Hornafjarðar fer mikinn og er það að sjálfsögðu hann Stjáni okkar Hauksson. Verður einnig mikil hamingja og snyrtimennskan höfð í fyrirrúmi.</description>
Haustlitaferðin verður í Bæjarstaðaskóg
      <description>Góð aðsókn hefur verið í ferðir Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu það sem af er sumri segir formaðurinn Rannveig Einarsdóttir. Við höfum yfirleitt verið mjög heppin með veður og aldrei þurft að breyta ferðaáætlun. Næsta ferð okkar verður í Álftafjörð 11.ágúst  þar sem farið verður á bílum inn í Múladal og gengið þaðan yfir í og út Hofsdal. Þetta er  þriggja skóa ganga sem tekur um sex tíma. Þetta er stórbrotin og falleg leið og auðveld öllum sem eitthvað stunda gönguferðir.</description>