Besta árið í ferðaþjónustunni á Smyrlabjörgum
Hér er allt á fullu í ferðaþjónustunni ennþá og mikið að gera fram að næstu helgi og ég á von á að svo verði út september sagði Laufey Helgadóttir á Smyrlabjörgum þegar hún var spurð um hvernig ferðaþjónustan hafi gengið í sumar. Góðar horfur eru á að þetta ferðaþjónustuár verði betra hjá okkur en sl. ár, þó komu færri gestir í maí, júní var betri, allt fullt í júlí og ágúst svakalega góður og gott þessa daga sem af eru sept. Þetta hefur verið afskaplega gott sumar hjá ferðaþjónustuaðilum hér á svæðinu og allir eru ánægðir, veðrátta hefur verið góð í sumar og frábær það sem af er haustinu. Þó gistirúmum fjölgi á hverju ári segir Laufey enga hættu á offramboði á gistingu því ferðamönnum fjölgar meira en sem þeirri aukningu nemur.
Á Smyrlabjörgum er gistirými fyrir 100 manns og í sumar voru starfsmenn 17 en voru rúmlega tuttugu sl. sumar. Flest af starfsliði okkar í sumar var hér í fyrra og þetta eru alveg frábærir starfskraftar sem vita nákvæmlega hvað gera þarf og vinna eins og herforingjar og það munar öllu segir Laufey. Mér finnst þetta sumar hafa verið í heildina mjög skemmtilegt bæði veðurfarslega og ferðaþjónustulega séð og með því besta frá því ég byrjaði í þessu og ég held að við ferðaþjónustuaðilar hér getum horf stolt fram á veginn.





Skrifa athugasemd