September
Silvia Hromadko
Silvia Hromadko
Silvia Hromadko

25.09.2006 September

Býður upp á þýskukennslu á Höfn í vetur

Enn hefur aukist á námsframboð á Höfn. Í vetur mun Silvia Hromadko bjóða Hornfirðingum að læra þýsku á fimmtudagskvöldum. Silvia er þýsk og kemur til okkar frá Djúpavogi og má því segja að þar með sé verið að efla enn meir menningarsamstarf milli þessara sveitarfélaga. Silvia er kona Svavars Sigurðssonar sem reynir nú að hafa hemil á kvennakórnum annað árið í röð. Hún er einnig dóttir ritstjórans Hennig Söhl, sem enn í dag þrátt fyrir að vera kominn á eftirlaun má hvorki sjá né heyra vitleysu í þýskunni. Strangur skóli þar. Hér er upplagt tækifæri til að ná grunnatriðum á þessu tungumáli og geta boðið þýskum ferðamönnum góðan dag á þeirra ástkæra ylhýra og sjálfsagt eitthvað meira. Þetta er sem sagt upplagt fyrir alla sem starfa við ferðaþjónustu, byrjendur og lengra komna.

Kennt verður námsefnið ?Þýska fyrir þig? og mun kennslan fara fram í Hafnarskóla.
Áhugasamir geta skráð sig í síma 8916333 og 8918339

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica