Ragnhildur Jónsdóttir ráðin sem verkefnisstjóri hjá ÞNA
Þekkingarnet Austurlands (ÞNA) hefur ráðið Ragnhildi Jónsdóttur sem verkefnisstjóra á Höfn. Hlutverk hennar er náms- og starfsráðgjöf við einstaklinga, samskipti við fjarnema, þróun símenntunar og umsjón með námskeiðum Þekkingarnetsins. Ragnhildur sem hefur unnið að menntamálum á Hornafirði síðustu 25 ár er menntuð sem sérkennari og náms- og starfsráðgjafi. Áður starfaði hún við sérkennslu í Hafnarskóla, ráðgjöf hjá Skólaskrifstofu Hornafjarðar, og nú síðast sem námsráðgjafi í Heppuskóla en þar mun hún verða með annan fótinn til áramóta. Að sögn Ragnhildur hefur hún lengi haft áhuga á að starfa að fullorðinsfræðslu og símenntun. Henni líst vel á starfið hjá ÞNA þar sem það er fjölbreytt og bíður upp á margs konar þróunarverkefni.
Starfsstöð Ragnhildar er í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum og þar er hún við mánudaga og þriðjudaga frá kl. 08:30 til 16:30 til áramóta en eftir það verður hún væntanlega komin í fullt starf hjá Þekkingarnetinu.





Skrifa athugasemd