Laugardaginn 14. október n.k. mun Hornfirska skemmtifélagið í fimmta sinn frumsýna glæsilega tónlistardagskrá á Hótel Höfn. Að þessu sinni verður rifjað upp gömlu góðu árin þegar rokkið var að slíta barnsskónum og flytja lög á borð við At the hoop, Locomotion, That´ll be the day, Be bob a lula , Runaway , Peppermint twist, Chappel of love, Walk the Line, C´mon everybody , Lollipop og In his kiss. Í tengslum við sýninguna bíður Hótel Höfn upp á 3ja rétta kvöldverð og dansleik með hljómsveitinni KUSK. Matseðillinn verður, í forrétt amerísk kjúklingaveisla með teriyaki, í aðalrétt, lambapiparsteik með gulrótarflani, steiktum maís og buffalósósu, í eftirrétt verður milk shake “American graffiti”.
Lesa meira