Október
Guðmundur Heiðar Gunnarsson
Guðmundur Heiðar Gunnarsson
Guðmundur Heiðar Gunnarsson ásamt eiginkonu sinni Heiðrúnu Högnadóttur (úr myndasafni)
Mynd 1 af 2
1 2

02.10.2006 Október

Og nú er ég kominn heim

Rannsóknarstofa Fiskiðnaðarins opnaði útibú í Nýheimum á Höfn 1. september sl. og er umsjónarmaður þess Guðmundur Heiðar Gunnarsson. Guðmundur er Hornfirðingur og því öllum hnútum kunnugur á sínu heimasvæði. Ég er mjög ánægður með að vera kominn heim aftur og fá vinnu í mínu fagi segir Guðmundur. Síðan ég fór héðan hef ég lengst af verið í Reykjavík, fór þar í nám í lífefnafræði til að byrja með og síðar fór ég í doktorsnám í læknadeild í Háskólanum í sameindar erfðarfræði þ. e. Líftækni. Samhliða því var ég framkvæmdastjóri við lítið fyrirtæki sem ég stofnaði og heitir Lífeind, sérhæft í að selja ákveðinn tæknibúnað.

Það var svo komið að tímamótum hjá mér að breyta til og nú er ég kominn heim og tekinn hér við starfi fyrir Rannsóknarstofu Fiskiðnaðarins sem um næstu áramót kemur til með að heita Matís sem er heiti á sameinuðum fyrirtækjunum Rannsóknarstofu Fiskiðnaðarins, Matvælarannsómnum í Keldnaholti og Rannsóknarstofu Umhverfisstofnunar. Ég er með aðstöðu í Nýheimum en markmiðið er að koma upp rannsóknaraðstöðu í öðru húsnæði.

Matís, sem er stórt fyrirtæki, sérhæfir sig í rannsóknum á matvælum og verður með þetta útibú hér á Hornafirði (upphaflega RF) og er markmiðið að vinna að því að hámarka verðmæti afurða, fyrst og fremst fiskafurða, og svo verðmæti allra landbúnaðar- og sjávarafurða. Guðmundur segir að megin markmiðið núna vera að koma verkefnum af stað og byrja á verkefnum sem byrjað var að skilgreina hjá Frumkvöðlasetri Austurlands. Það fyrsta sem byrjað var á er að finna aðferð við að geyma lifandi humar til að koma honum þannig á markað og fá hærra afurðaverð úr þessari takmörkuðu auðlind.

Þá er búið að setja upp tækjabúnað til að geyma lifandi humar í fiskvinnsluhúsi Skinneyjar Þinganess og ég vonast til að verða kominn með lifandi humar í geymslu þar í lok október.

Eiginkona Guðmundar heitir Heiðrún Högnadóttir ættuð af Snæfellsnesinu og þau eiga tvær dætur, Sunnu Dögg sjö ára og Elísabetu sem er ellefu mánaða. Guðmundur segir að þær séu ánægðar með að flytja hingað austur og Sunna Dögg viti nú að reiðhjól séu ekki bara leiktæki sem notuð séu til að hjóla á í hringi á planinu heima heldur séu þau farartæki.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica