Október
busaball_004
busaball_004

10.10.2006 Október

Mikið framundan í Heppuskóla

Heppuskóli hefur nú gefið út nýtt fréttabréf. Þar kemur m.a. fram að nemendur skólans áttu þess kost að velja sér söng sem valgrein. Nokkur hópur nemenda valdi sönginn og hófust æfingar í haust. Stjórnandi er Sigurður Páll Árnason. Fyrirhugað er að þessi kór syngi við ýmis tækifæri á vegum skólans. Eins og verið hefur er starfandi lítil heimavist við skólann. Sú breyting hefur orðið að heimavistin er í vetur á Höfn. Samið var við Halldór Sævar Birgisson um að sjá um vistina og er hún til húsa að Bogaslóð 6 (Sólhóll). Nemendur í heimavistinni eru 3. Eins og í fyrra var samið við Kaffi Hornið um mat fyrir nemendur skólans. Helstu breytingar frá síðasta ári eru að hvert tímabil er 4 vikur, nemendur fá ávexti í eftirrétt og hægt er að fá aukaskammt (ábót) sem kostar kr. 300.-. Í september voru nær sjötíu nemendur í mat.

Foreldraráð
Foreldraráð er starfandi við skólann og hefur það haldið einn fund með skólastjórnendum. Foreldraráðið skipa veturinn 2006-2007:
Úr 10. bekk Sigrún Sveinbjörnsdóttir aðalmaður og Ólöf Ólafsdóttir varamaður
Úr 9. bekk Sigríður Lárusdóttir aðalmaður og Signý Knútsdóttir varamaður
Úr 8. bekk Gauti Árnason aðalmaður og Heiðveig M. Jónsdóttir varamaður
Foreldrum er bent á að þessir aðilar eru fulltrúar foreldra og hjá þeim eru ýmis gögn um skólastarfið. Einnig geta foreldrar snúið sér til foreldraráðs með erindi er varða skólastarfið ef þeir kjósa það frekar en hafa beint samband við skólastjórnendur eða umsjónarkennara. Foreldraráð fundar með skólastjórnendum einu sinni í mánuði.Foreldraráð fundar með skólastjórnendum einu sinni í mánuði.

Forvarnardagur
Fimmtudaginn 28. október tóku nemendur í 9. bekk þátt í forvarnardeginum sem haldinn er að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við félagasamtök, Reykjavíkurborg, Bandalag íslenskra skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga og með stuðningi Actavis. Farið var í gegnum verkefni dagsins. Einnig kom Valdemar Einarsson frá Ungmannafélaginu Sindra og gerði grein fyrir starfi félagsins. Tókst þetta allt mjög vel.

Foreldradagur
Föstudaginn 27. október er foreldradagur. Fyrirkomulag viðtalanna verður sent í bréfi þegar nær dregur.

Leikhópurinn Lopi
Leikhópurinn Lopi er tekinn til starfa og er þetta 14. starfsár leikhópsins. Í leikhópnum núna eru um 30 leikarar og um 5 manna tæknihópur. Stefnt er að frumsýningu í nóvember.

Vísindaferð 8. bekkjar
Samkvæmt skóladagatalinu á þessi ferð að vera 2. nóvember 2006. Undanfarin ár hefur verið farið í Kárahnjúka. Vegna þeirra breytinga sem nú standa yfir við Kárahnjúka hefur verið ákveðið að flýta ferðinni og fara fimmtudaginn 19. október. Þetta er dagsferð og verður ekið um Öxi og sýning Landsvirkjunar í Végarði skoðuð. Síðan er ekið að Kárahnjúkastíflu. Á heimleiðinni verður borðað á Egilsstöðum og síðan farin fjarðaleiðin heim og framkvæmdir í Reyðarfirði skoðaðar. Kostnaður á hvern nemanda er kr. 3.300.- og þurfa nemendur að greiða það miðvikudaginn 18. október.

Þjóðleikhúsið sýnir í íþróttahúsinu á Höfn
Þriðjudaginn 17. október kl.13:00 sýnir Þjóðleikhúsið leikritið Patrek 1,5 - grafalvarlegan gamanleik eftir Micael Druker. Sýningin er fyrst og fremst góð skemmtun en um leið vekur verkið margar áleitnar siðferðislegar og samfélagslegar spurningar. Sýningunni fylgir fræðslu pakki og verður efnið tekið til umræðu í lífsleikni í skólanum að sýningu lokinni. Sýningin er ætluð nemendum FAS og Heppuskóla og kostar miðinn kr. 1.000.-
Ég hvet alla nemendur skólans til að sjá þessa sýningu.

Starfsfólk Heppuskóla sendir foreldrum og forráðamönnum bestu kveðjur með ósk um farsælt og árangursríkt samstarf.

Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
skólastjóri Heppuskóla

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica