Október
Elding_myndasafn
Elding_myndasafn
Elding_myndasafn
Mynd 1 af 2
1 2

13.10.2006 Október

Kröftugt þrumuveður veldur miklu tjóni

Kröftugt þrumuveður gekk yfir Höfn og nágrenni í gærkvöldi og olli miklu tjóni á flestum bæjum í Nesjum vestan Hafnar. Að sögn Hjartar Hjartarsonar hjá Símanum voru um hádegi í dag komnar tilkynningar frá 12 bæjum um tjón á tölvum, símkerfum og eitthvað hafði eyðilagst af sjónvörpum einnig datt sjálfvirka sambandið á Hvanneyjarvita út. Hjörtur sagði að í flest öllum tilfellum hefðu þessar tilkynningar komið frá þeim sem eru með ISND tengingu og að sá öryggisbúnaður sem þar á að varna spennusveiflum hefði ekki dugað til varnar eldingunum. Jóhanna Gísladóttir í Stórulág segir þetta eitt mesta þrumuveður sem hún man eftir og það var svo kröftugt að hlutir í hillu titruðu. Þrumuveður virka illa á skepnur einkum hesta og sagði Jóhanna hest hjá þeim hafa fælst og þotið upp á veg en hann náðist fljótlega og var komið í hús. Í Stórulág eyðilagðist sjónvarp, tölva og sími.

Hornfirðingurinn Kristín Hermannsdóttir á Veðurstofu Íslands sagði að mjög erfitt væri að spá fyrir um þrumuveður því litlar upplýsingar væru um þau í veðurkortunum sem þau fengju frá Frakklandi, það væri ekki nema einstaka sinnum. Í gær gekk mikið þrumuveður yfir Bretland og kannski höfum við fengið smá afleggjara af því. Þrumuveðrið byrjað kl.22.45, fyrst í Lóni næst Stafafellsfjöllum og fluttist síðan yfir Nesjasveit og nágrenni með miklum ljósagangi, hávaða og hellirigningu. Að sögn Berglindar í Freysnesi sluppu Öræfingar við þrumuveðrið að þessu sinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica