Október
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára

19.10.2006 Október

Dreki fenginn til að koma nemendum í samræmt próf vegna veðurs

Mjög hvasst er í Öræfum í dag, nálægt 50 m/sek í mestu hviðum. Skólanum í Hofgarði var aflýst en þar sem 2 nemendur þurftu að komast í samræmt próf var bryndreki slysavarnafélagsins fenginn til að koma þeim á milli svo að allt gekk eftir áætlun með prófið. Pálína Þorsteinsdóttir skólastjóri segir að heldur sé farið lægja en mjög hvasst sé samt ennþá. Hún segir að eitthvað hafi verið um bílaumferð í Öræfum í dag og veit ekki til að óhöpp hafi orðið þó ekki sé hægt að segja að sé ferðaveður. Þetta er í annað sinn sem kennsla fellur niður í haust vegna hvassviðris því við tökum enga áhættu með að fara með börnin á milli þegar ekki telst ferðaveður.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá eru veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Norðaustanátt, víða 13-18 m/s og bjartviðri, en skúrir austast. Hiti 1 til 8 stig.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica