Október
Skökkviliðsstjórar á Höfn 2006
Skökkviliðsstjórar á Höfn 2006
Slökkviliðsstjórarnir
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

27.10.2006 Október

Félag Slökkviliðsstjóra hélt sinn árlega aðalfund í Nýheimum

Félag Slökkviliðsstjóra á Íslandi hélt sinn árlega aðalfund í Nýheimum á Höfn um sl. helgi. Efst á baugi hjá slökkviliðum landsins þessa dagana eru eiturefnamál segir Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu sem er formaður félagsins. Brunamálastofnun hefur fengið 100 mkr. frá ríkinu til kaupa á búnaði sem útdeilt verður til slökkviliðanna í landinu. Umhverfismál eru okkar hlutverk núna, segir Kristján, og þar eigum við að sjá um eiturefnamálin, við eigum að hreinsa upp eftir eiturefnaslys og passa uppá að líf fólks verði ekki í hættu. Verið er að kaupa kerrur með eiturefnabúnaði ásamt fleiri tækjum og tólum sem dreift verður á slökkviliðin. Þetta er þyrlutækur búnaður sem fluttur verður milli staða eftir þörfum. Slökkviliðin munu skiptast á með að æfa sig í notkun á þessum búnaði sem síðan verður skipt niður á fjórðunga landsins og ekki er ólíklegt að eitthvað af þessu verði staðsett hjá Slökkviliði Hornafjarðar þar sem þetta svæði er sérhæft og langt til annarra staða.

Það voru ekki bara eiturefnamál sem rædd voru á fundinum heldur er á hverjum svona fundi tekin fyrir þau mestu áföll sem slökkviliðin hafa lent í á árinu sem að þessu sinni voru sinueldar og sprengjueldarnir í Hveragerði sl. gamlaárskvöld. Þessi mál eru krofin niður í grunn og hvert afbrigði skoðað og rætt um hvernig unnið var að slökkvistarfi. Þá er verið að efla eldvarnaeftirlit í landinu og mun Brunamálastofnum útdeila tölvum til slökkviliða og efla eldvarnir í landinu.

Að loknum fundi var slökkviliðsstjórunum og eiginkonum þeirra boðið að skoða Jöklasýninguna og þiggja þar léttar veitingar. Konur slökkviliðsstjóranna á Höfn þær Sólveig Sveinbjörnsdóttir og Ágústína Halldórsdóttir sáu um að sýna stallsystrum sínum staðinn og meðal annars var siglt með Birni Lóðs út að ós og síðan ekið upp í Stafafellsfjöll. Um kvöldið héldu slökkviliðsstjórarnir árshátíð sína á Hótel Höfn.

Við reynum að dreifa þessum fundum um landið segir Kristján og núna buðu Steinþór slökkviliðsstjóri og bæjarfélagið okkur að hafa fundinn hér og erum við ákaflega þakklát fyrir frábærar móttökur og fundaraðstaðan í Nýheimum er með því besta sem við höfum verið í gegnum árin, þetta var alveg frábært.

Stjórn Félags Slökkviliðsstjóra á Íslandi skipa
Formaður: Kristján Einarsson, sl.stjóri Brunavarna Árnessýslu

Meðstjórnendur:
Jón Viðar Matthíasson, sl. stjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis
Óskar S. Óskarsson, sl.stjóri Brunavarna Skagafjarðar
Sigmundur Eyþórsson, sl.stjóri Brunavarna Suðurnesja
Baldur Pálsson, sl.stjóri Brunavarna á Héraði

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica