Nóvember

FAS_IMG_2580

Þórhildur dettur í lukkupott - 29.11.2006 Nóvember

Oft á tíðum tekur fólk þátt í ýmis konar leikjum. Þórhildur Rán Torfadóttir nemandi í FAS tók þátt í einum slíkum sem Office1 stóð fyrir í haust. Hún var svo heppin að hljóta fyrsta vinning í þeim leik. Það má segja að það hafi ekki einungis verið hún sem datt í lukkupottinn. Auk hennar fengu nemendafélag skólans og svo skólinn sjálfur gjöf. Þórhildur fær að gjöf tölvu, fjölnota prentara, myndavél og skó frá Skór.is. Nemendafélag FAS fær fartölvu og myndavél og skólinn skjávarpa og sýningartjald. Við óskum Þórhildi til hamingju með vinninginn um leið og við þökkum fyrir okkur. Þessar gjafir munu nýtast vel. Lesa meira
 
Sólarlag við höfnina

Bilun í IPgátt Símans á Höfn - 29.11.2006 Nóvember

Vegna bilunar á Ipgátt símans á Höfn þá hafa fjölmörg fyrirtæki og stofnanir á Hornafirði verið sambandslaus við Internetið. Bilunar varð vart um tvö-leitið í nótt og í framhaldi af því var keyrt af stað með varahlut frá Reykjavík. Bilun þessi hefur áhrif á þau fyrirtæki sem eru tengd við IPgátt Símans og eru það m.a. Ráðhúsið, Nýheimar, Grunnskólarnir, leikskólarnir, Heilbrigðisstofnun, Vís, Nýheimar, Hótel Höfn, Vélsmiðja Hornafjarðar, Vegagerðin, Flugturninn, Sparisjóðurinn og Landsbankinn. Lesa meira
 
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára

Svo hvasst að drekinn færðist til undan mestu vindhviðunum - 28.11.2006 Nóvember

Mikið hvassviðri var í Öræfasveit í gær og um kl.21.30 mældust mestu vindhviðurnar 68 m/s framan við Svínafell og 60m við Kotá. Ólafur Sigurðsson á Svínafelli fór á Drekanum að huga að húsbíl sem sást til á austurleið en sú athugun bar ekki árangur og sagði Ólafur að hætt hefði verið frekari athugun um hann þar sem ekki sáust nein merki þess að hann hefði lent í ógöngum á hvassasta svæðinu. Á leiðinni frá Fagurhólsmýri að Freysnesi var flutningabíll (pakkabíllinn) í fylgd drekans og komst hann slysalaust þangað en bílstjórinn sagði að þetta hefði verið skelfileg lífsreynsla og ótrúlegt að komast þetta. Svo hvasst var að drekinn færðist til undan mestu vindhviðunum og vegstikur lágu flatar. Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi sagði að ekki væri nema 47m í mestu gusunum hjá þeim og þar biðu nokkrir bílar þess að komast áfram. Ekki er vitað til að tjón hafi orðið á eignum í veðurofsanum eða að bílar hafi skemmst. Lesa meira
 
Ólafia Hrönn Jónsdóttir

Opinn fundur og skemmtikvöld á Hótel Höfn - 27.11.2006 Nóvember

Bjarni Harðarson, blaðamaður og bóksali á Selfossi, boðar til opins fundar og skemmtikvölds á Hótel Höfn í kvöld. Með Bjarna í för verður leikkonan og skemmtikrafturinn Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Bjarni stefnir á 2. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum en á fundinum mun Bjarni meðal annars endurskilgreina á léttum nótum íslenska fjórflokkakerfið. Ólafía Hrönn mun skemmta gestum með söng og gamanmálum. Lesa meira
 
Halldór Kr. Sigurðsson

Lærum að búa til heimatilbúið konfekt - 27.11.2006 Nóvember

Konfektnámskeið verður haldið í Mánagarði næstu helgi nánar tiltekið á laugardaginn 2.des Námskeiðið verður í umsjón Halldórs Kr. Sigurðssonar bakara og konditormeistara í samvinnu við Húsamiðjuna á Höfn. Að sögn Halldórs þá ætlar hann að koma hingað austur og kenna listina að búa til konfekt, hann segir að ef réttu handtökin eru notuð þá sé auðvelt fyrir alla að búa til dýrindis konfekt. Á námskeiðinu sem er um 2 tímar verður farið verður yfir allt sem að snýr að konfektgerð og hentar námskeiðið fólki á öllum aldri. Innifalið er allt hráefni en námskeiðsgjaldi er stillt upp í hóf og kostar aðeins 2500 krónur á mann. Ekki spillir fyrir að þátttakendur taka með sér a.m.k. 20-30 mola heim. Allir sem að mæta á námskeiðið fá 25% afslátt af öllum búsáhöldum í Húsasmiðjunni hér á Höfn sem og í öðrum Húsamiðjuverslunum. Halldór sem haldið hefur slík námskeið síðustu 9 árin segir að námsskeið sem þetta sé mjög vinsælt enda jafnast ekkert á við heimatilbúið konfekt á jólahátíðinni. Lesa meira
 
Staðará í Suðursveit

Byrjað á nýrri brú yfir Staðará í Suðursveit - 27.11.2006 Nóvember

Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar sem unnið hefur að viðhaldi á Jökulsárbrú á Breiðamerkursandi hefur flutt sig austur að Staðará í Suðursveit þar sem byrjað verður á byggingu nýrrar brúar. Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni segir að unnið verði við brúarsmíðina til 15. desember og svo byrjað aftur í febrúar. Jón á von á að ný brú komi á Smyrlabjargará á næsta ári og þar með verður tveim einbreiðum brúm færra í sýslunni, nóg er eftir af þeim samt. Brúarvinnuflokkurinn, sem er frá Vík, hefur unnið við Jökulsá frá því í sumar og m.a. skipt um dekk á brúnni en ekki hefur viðrað til að sandblása brúna og vírana þar sem visst rakastig þarf að vera til að hægt sé að sandblása svo þær framkvæmdir verða að bíða næsta sumars. Lesa meira
 
Nýheimar

Nýheimadagur á föstudag - 22.11.2006 Menning

Föstudaginn 24. nóvember frá kl. 12 og 17 verður haldin kynning á starfsemi og húsnæði þekkingarsetursins Nýheima. Allt frá því að Nýheimar hófu starfsemi sína árið 2002, hafa Nýheimar vaxið og dafnað og eru í dag eitt öflugasta þekkingarsetur landsins. Nýheimar eru ekki bara fallegt hús á Hornafirði heldur eru þeir sérhannað húsnæði og umgjörð um starfsemi þar sem verið er að vinna og sinna menningu, menntun, rannsóknum og nýsköpun. Nýheimar eru stór vinnustaður í samfélagi okkar og í dag eru 20 fyrirtæki eða stofnanir með starfsemi sína í húsinu og þar vinna um 40 manns. Nýheimar er eign okkar allra og öllum opið. Starfsmenn Nýheima bjóða gestum og gangandi að koma í Nýheima og kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi sem fer fram í húsinu. Dagskrá hefst kl. 12. Boðið verður uppá kaffi og kleinur. Lesa meira
 
Höfðingleg gjöf til rithöfunda

Gaf Rithöfundasambandinu húseignin í Suðursveit - 22.11.2006 Nóvember

Föstudaginn 13. október sl. fór fram stutt en hátíðleg athöfn þar sem Guðrún Sveinsdóttir, nú búsett hér á Höfn, færði Rithöfundasambandi Íslands að gjöf húseignina að Sléttaleiti í Suðursveit. Um er að ræða nýlegt sumarhús reist þar sem bærinn stóð áður og er gjöfin til minningar um foreldra Guðrúnar, Auðbjörgu og Svein Mikael, síðustu ábúendur að Sléttaleiti, svo og einkabróður Guðrúnar, Þorgils Bjarna. Einnig vill hún með gjöfinni heiðra minningu frænda síns, Einars Braga, skálds og rithöfundar, en Einar var á unglingsárum við sumarstörf hjá frændfólki sínu að Sléttaleiti. Í húsinu er að finna öll ritverk Einars og ýmisleg gögn um höfundarverk hans að auki. Þá sakar ekki að geta þess að Sléttaleiti er í næsta nágrenni við Hala í Suðursveit, en þar hefur nú risið Þórbergssetur sem er ætlað að sýna minningu og höfundarverki Þórbergs Þórðarsonar rækt. Lesa meira
 
Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum

Heimsmeistari í jöklamælingu - 21.11.2006 Nóvember

Fylgst hefur verið með breytingum á skriði jökla í Öræfum og hopi og sporðar þeirra mældir árlega frá ca. 1925 og að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings hjá Orkustofnun hefur einn Öræfingur gert slíkar mælingar 60 sinnum en Oddur tekur saman upplýsingar frá jöklamælingamönnum fyrir Jöklarannsóknarfélag Íslands. Þessi Öræfingur er Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum sem hóf að mæla og skrá breytingar á jöklunum í Öræfasveit fyrir 60 árum og hefur gert það á hverju hausti síðan, það eru því mestar líkur á að hann sé orðinn heimsmeistari í jöklamælingum. Guðlaugur segist hafa notið aðstoðar Ragnars Frank í Skaftafelli við mælingarnar undanfarin 7 ár og hvað mest í haust því sjónin sé orðin svo léleg og hér með sé hann endanlega hættur þessu og nú geti Ragnar séð um þetta næstu 60 árin. Guðlaugur sem hóf þessar mælingar 1946 man tímana tvenna og á hans uppvaxtarárum í Svínafelli voru jöklarnir miklu stærri og árnar ógnuðu byggðinni. Lesa meira
 
Séð frá Leiðarhöfða

Jákvætt að fasteignum á söluskrá hefur fækkað - 20.11.2006 Nóvember

Þetta er allt frekar jákvætt og fasteignum á söluskrá hjá okkur hefur fækkað´´ sagði Snorri Snorrason hjá Fasteignasölunni Hrauni á Hornafirði þegar fréttamaður spurði hann um fasteignasölu á svæðinu. Það hefur verið heldur meiri sala fasteigna á þessu ári en var sl.ár og vísbendingar eru um að verð fasteigna fari hækkandi. Snorri segir að fleiri hafi samband við fasteignasöluna en áður og mikið er um að fólk hringi til að spyrja um hvað staðurinn hafi uppá að bjóða svo sem hvað atvinnu varðar, um leikskólapláss og hvaða skólanám sé í boði og er ánægjulegt að geta svarað þessum þáttum jákvæðum. Hvað leigumarkaðinn varðar er eitthvað af litlum íbúðum á lausu en engin íbúðarhús. Lesa meira
 
Breiðabólstaðarlón

Hægt er að baða sig í fiskikari í næsta nágrenni við gistihúsin - 16.11.2006 Nóvember

Á Hala er nú hægt að panta gistingu í sérhúsnæði. Um er að ræða tvö einbýlishús með góðri eldunaraðstöðu og setustofu. Yfir sumartímann er mikið um að vera og panta þarf gistingu með góðum fyrirvara. Í báðum húsunum geta dvalið 26 - 28 manns, í vestra húsi 14 - 16 manns og eystra húsi 12 manns. Fyrir utan háannatímann þ.e. frá 1. september til 1. júní er hægt að koma og dvelja á Hala yfir helgi eða í lengri tíma. Á það við um hópa, fjölskyldur, fræðimenn eða skólahópa. Á vegum Þórbergsseturs er hægt að panta sérstaka dagskrá sem hentar hverjum og einum. Sem dæmi má nefna gönguferð að kvöldlagi og stjörnuskoðun, upplestur úr verkum Þórbergs eða efni úr Suðursveit, gönguferðir úti í náttúrunni, ratleikir, skoða fiskeldi og ála, hátíðarkvöldverður í Þórbergssetri o.fl. Lesa meira
 
Þyrlur Landhelgisgæslunnar á Hornafjarðarflugvelli

Þyrlurnar í viðbragðsstöðu á Hornafjarðarflugvelli - 14.11.2006 Nóvember

Báðar stóru þyrlur Landhelgisgæslunnar lentu á Hornfjarðarflugvelli í morgun til að vera í viðbragðsstöðu vegna erlends flutningaskips sem á í erfiðleikum vegna bilunar í aðalvél skipsins. Skipið er statt um 100 sjómílur suðaustur af landinu og er vindhraði þar um 25 til 30 metrar og mikil ölduhæð. Fram kom á fréttavef Vísis að annað erlent flutningaskip er komið á vettvang og veitir bilaða skipinu skjól eftir föngum. Skipstjóri á bilaða skipinu er í stöðugu sambandi við Landhelgisgæsluna, sem fylgist þannig með framvindu mála. Átta menn eru í áhöfn skipsins. Búist er við að Fokker Landhelgisgæslunnar lendi á Hornafjarðarflugvelli um hádegisbilið. Lesa meira
 
Þrúðmar Sigurðsson

Nýtt útfall úr Svínafellsjökli eykur vatn í Hornafjarðarfljóti - 14.11.2006 Nóvember

Myndast hefur útfall úr Svínafellsjökli norðan Svínafells í Nesjum og við það eykst vatn í Hornafjarðarfljóti. Nýja útfallið veldur því að nú fer hluti af austurfljótunum, sem renna úr jöklinum austan Svínafells, í suðurfljót norðan við Svínafell og hefur vatnsmagn í suðurfljótum aukist mikið. Það er umtalsvert magn vatns sem rennur þarna segir Þrúðmar Sigurðsson í Hoffelli, þess gætir verulega þarna þegar lítið er í fljótunum því það virðist fara nokkuð jafn mikið hvort sem það er mikið eða lítið rennsli. Þetta er nýtt útfall undan jöklinum vegna bráðnunar og minnkunar jökulsins. Við þessa breytingu var mun betra að komast yfir fljótin framan við Svínafell í nokkra daga en eftir rigningarnar um daginn urðu fljótin sjómikil svo bóndinn í Svínafelli varð að nota hjólabát sinn til að komast yfir þau. Þetta segir okkur að sama vatnsmagnið er enn í gamla farveginum þó þessi kvísl fari þarna vestur fyrir innan og í suðurfljótin. Að óbreyttum aðstæðum er þessi nýja kvísl komin til að vera og þetta vatn kemur greinilega undan jöklinum. Lesa meira
 
Öræfajökull

Tillaga Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra um Vatnajökulsþjóðgarð samþykkt - 10.11.2006 Nóvember

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í morgun tillögu Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra aðstjórnarfrumvarpi um Vatnajökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn verður sá stærsti í Evrópu og munhafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum.Vatnajökulsþjóðgarður mun þekja um 15.000 km² sem samsvarar um15% af yfirborði Íslands ognær til lands sem varðar stjórnsýslu átta sveitarfélaga. Samkvæmt frumvarpinu mun þjóðgarðurinn í fyrstu ná til alls jökulsins og helstu áhrifasvæðahans, þ.m.t. Jökulsá á Fjöllum. Nákvæm mörk þjóðgarðsins munu þó ráðast endanlega afsamningum við landeigendur og handhafa nytjaréttar. Fyrir liggur að töluverður hluti af þvílandssvæði sem áhugavert er að falli innan Vatnajökulsþjóðgarðs vegna náttúrufars og tengingarvið Vatnajökul eru í einkaeign og verða ekki hluti þjóðgarðsins nema til komi samkomulag viðlandeigendur. Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra

Vatnajökulsþjóðgarður metnaðarfyllsta verkefnið á sviði umhverfisverndar - 10.11.2006 www.mbl.is

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segir stjórnarfrumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð vera metnaðarfyllsta verkefni sem íslensk stjórnvöld hafi lagt í á sviðu umhverfisverndar og landnýtingar. „Það sem er sérstakt við þennan þjóðgarð er auðvitað stærð hans og það að hann verður stofnaður með sérstökum lögum og stofnuð verður sérstök ríkisstofnun um rekstur hans," sagði hún í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. „Þetta er einnig atvinnuskapandi byggðamál þar sem áætlanir sýna að gera megi ráð fyrir 5-7% aukningu ferðamanna á svæðinu," sagði hún. Lesa meira
 
Legóhópurinn

Legóhópurinn að leggja í hann - 08.11.2006 Nóvember

Lego hönnunarkeppnin verður haldin í annað sinn hér á landi þann 11. nóvember. Hafnarskóli sendir lið líkt og í fyrra og er hópurinn samansettur af 10 nemendum í 7. bekk. Það eru Guðjón Ingibergur, Aron Birkir, Sólveig Valgerður, Anna Mekkín, Anna Sigurðar, Kolbrún Birna Karen Björg, Kristey Lilja, Þórhildur og Karen Þórelfur sem skipa hópinn í ár en Eiríkur Hansson er liðstjóri. Lið Hafnarskóla heitir Nanónördar enda snýst keppnin í ár um Nanótæknina. Keppnin felst í því að liðið þarf að byggja og forrita róbóta sem þarf síðan að leysa níu þrautir á þrautabraut og þarf það að gerast á tveimur og hálfri mínútu. Einnig þarf liðið að skila rannsóknarverkefni um nanótæknina, halda dagbók og svo er hópurinn hvattur til að hafa skemmtiatriði á sviði í keppninni. Lesa meira
 
Jól í skókassa

Jól í skókassa - 07.11.2006 Nóvember

Börnin í 2.bekk Nesjaskóla mættu í skólastofu sína eftir skólatíma sl. miðvikudag með allskonar smádót, jólapappír, kassa og bönd og með þeim voru mömmur og pabbar til að hjálpa þeim við að pakka inn jólagjöfum til barna í Úkraínu. Með þessu framtaki eru þau að taka þátt í verkefninu ,,Jól í skókassa´´ sem KFUM og KFUK hefur staðið fyrir frá því fyrir jólin 2004. Um 40 börn eru í bekknum og mættu flest og greinilegt var að jólastemning ríkti í stofunni og ekkert síður hjá foreldrunum. En hvað eru jól í skókassa? Verkefnið jól í skókassa felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að setja nokkra hluti, eins og ritföng, vettlinga, sokka, hreinlætisvörur, leikföng og sælgæti í skókassa. Kassanum er síðan pakkað inn í jólapappír og útdeilt til þurfandi barna víðsvegar í heiminum og að þessu sinni eru það börn í Úkraníu sem fá jólapakka frá börnum á Íslandi. Lesa meira
 
Fiskistofa opnar á Höfn

Útibú Fiskistofu á Hornafirði opnað - 06.11.2006 Nóvember

Útibú Fiskistofu á Hornafirði var formlega opnað sl. föstudag að viðstöddum Fiskistofustjóra, ráðherrum og gestum. Þórður Ásgeirsson Fiskistofustjóri bauð gesti velkomna við opnun fjórða af sex útibúum, þegar öll verða komin sem Fiskistofa hyggst starfrækja í framtíðinni. Starfsmenn útibúsins eru þrír og sagði Þórður hugmynd vera um að þeim geti fjölgað í fimm enda bjóði bæði verkefni og fjármagn upp á að það verði gert. Þakkaði svo Þórður eigendum Garðeyjar fyrir að skjóta skjólshúsi yfir starfsemina hvort sem það verður til lengri eða skemmri tíma. Lesa meira
 
Nýsköpunarskóli

Hafnarskóli Nýsköpunarskóli ársins - 04.11.2006 Nóvember

Hafnarskóla hlotnast í ár sá heiður að vera tilnefndur "Nýsköpunarskóli ársins" og fær þar með farandbikar til varðveislu í eitt ár. Auk þess eiga tveir nemendur von á verðlaunum fyrir hugmyndir sínar í nýsköpunarkeppninni. Verðlaunaafhending fer fram í Ráðhúsinu í Reykjavík í dag laugardaginn 4. nóvember. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun afhenda verðlaunin eins og síðastliðin ár ásamt því að opna sýningu á hugmyndum úr keppninni og setja keppni 2007 af stað. Sýningin stendur einn dag í Ráðhúsinu en einnig verður hægt að skoða sýninguna á vef keppninnar: www.nkg.is. Æskilegt er að þau börn sem sjá sér fært að vera á sýningunni á sýningardeginum kynni hugmyndirnar sínar fyrir gestum og gangandi. Lesa meira
 
Mistur yfir Hrossabitahaga (úr myndasafni)

Kennarar við grunnskóla Hornafjarðar senda frá sér ályktun - 02.11.2006 Nóvember

Kennarar við grunnskóla Hornafjarðar hafa sent frá sér ályktun til Launanefndar sveitarfélaga, bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar, formanns skólanefndar Sveitarfélagsins Hornafjarðar og samninganefndar FG. Í ályktuninni segir “ Kennarar við grunnskólana á Hornafirði vilja vekja athygli á stöðu kjaramála kennara. Í gildandi kjarasamningi, í grein 16.1, segir m.a.: Aðilar skulu taka upp viðræður fyrir 1. september 2006 og meta hvort breytingar á skólakerfinu eða almenn efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni til viðbragða og ákveða þær ráðstafanir sem þeir verða sammála um. Lesa meira
 
Krossey SF-20

Fyrsta síldarlöndun Krosseyjar SF-20 - 01.11.2006 Nóvember

Krossey SF-20 landaði fyrsta síldarfarmi sínum hjá Skinney Þinganesi í dag 190 tonnum af frystum síldarflökum. Öll síld sem veidd er á Krossey er unnin og fryst um borð. Tvö önnur skip Skinneyjar Þinganess, Áskell og Jóna Eðvalds eru á síldveiðum og hefur veiði gengið vel. Samkvæmt upplýsingum á Hafnarvoginni er búið að landa sama magni af síld og í fyrra miðað við 1.sept.til 31.okt. 7000 tonnum en munurinn er sá að núna eru tvö skip, Áskell og Jóna Eðvalds, með sama magn og var af þrem skipum í fyrra. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica