Hafnarskóli Nýsköpunarskóli ársins
Hafnarskóla hlotnast í ár sá heiður að vera tilnefndur "Nýsköpunarskóli ársins" og fær þar með farandbikar til varðveislu í eitt ár. Auk þess eiga tveir nemendur von á verðlaunum fyrir hugmyndir sínar í nýsköpunarkeppninni. Verðlaunaafhending fer fram í Ráðhúsinu í Reykjavík í dag laugardaginn 4. nóvember. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun afhenda verðlaunin eins og síðastliðin ár ásamt því að opna sýningu á hugmyndum úr keppninni og setja keppni 2007 af stað. Sýningin stendur einn dag í Ráðhúsinu en einnig verður hægt að skoða sýninguna á vef keppninnar: www.nkg.is. Æskilegt er að þau börn sem sjá sér fært að vera á sýningunni á sýningardeginum kynni hugmyndirnar sínar fyrir gestum og gangandi.
Fulltrúar frá Hafnarskóla verða viðstaddir athöfnina í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem þeir munu að taka á móti farandbikarnum ásamt nemendum sem sýna hugmyndir sínar og taka á móti verðlaunum. Það er skemmst frá því að segja að nemendur og starfsfólk skólans er ákaflega stolt afþeim heiðri sem þessi tilnefning er og vonumst við til að standa undir nafni sem nýsköpunarskóli áfram. Það er þó einn maður öðrum fremur sem á heiðurinn skilið en það er hann Eiríkur Hansson sem staðið hefur fyrir kennslu í nýsköpun undanfarin ár. Hann hefur verið óþreytandi í að opna augu nemenda fyrir vandamálum í umhverfinu sem hægt væri að leysa og ýtt með því undir frumkvöðlahugsun nemenda. Þess má geta að Eiríkur getur ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna að þessu sinni vegna þess að hann er með hóp af nemendum úr Heppuskóla í frumkvöðlavinnu í Hrollaugsstöðum um helgin en þá vinnu telur hann m.a. vera sprotna af nýsköpunarvinnunni og er hann að vonum stoltur af hvorutveggja.





Skrifa athugasemd