Nóvember
Fiskistofa opnar á Höfn
Fiskistofa opnar á Höfn
Einar Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra
Mynd 2 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

06.11.2006 Nóvember

Útibú Fiskistofu á Hornafirði opnað

Útibú Fiskistofu á Hornafirði var formlega opnað sl. föstudag að viðstöddum Fiskistofustjóra, ráðherrum og gestum. Þórður Ásgeirsson Fiskistofustjóri bauð gesti velkomna við opnun fjórða af sex útibúum, þegar öll verða komin sem Fiskistofa hyggst starfrækja í framtíðinni. Starfsmenn útibúsins eru þrír og sagði Þórður hugmynd vera um að þeim geti fjölgað í fimm enda bjóði bæði verkefni og fjármagn upp á að það verði gert. Þakkaði svo Þórður eigendum Garðeyjar fyrir að skjóta skjólshúsi yfir starfsemina hvort sem það verður til lengri eða skemmri tíma.

Það kom í hlut Einars Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra að lýsa útibúið formlega tekið til starfa og sagði hann þetta merkan áfanga sem full ástæða væri til að fagna. Ráðherra sagði að það yrði í mörg horn að líta hjá starfsmönnum útibúsins hér þar sem svæðið næði frá Borgarfirði eystri suður til Hornafjarðar, við eftirlit í skipum, á hafnarvogum og í fiskvinnslum. Þegar er komin nokkur reynsla á starfsemina í Vestmannaeyjum og þeir sem ég hef heyrt í eru hæðst ánægðir með hvernig til hefur tekist, þar er m.a. séð um alla bakreikninga og þeir færðir til afla og þar hefur nýr sproti bæst við atvinnulífið sem góður rómur er gerður að og vonandi verður það sama uppi á teningnum hér. Hér er um að ræða veigamestu ákvörðun seinni ára um staðsetningu starfa á landsbyggðinni og þessir staðir eiga eftir að njóta mjög góðs af þessu. Fyrirhugað er að öll útibúin hafi tekið til starfa 2009 og þá verða 30 störf veiðieftirlitsmanna komin út á land að meðtöldum þeim sem þegar eru komin.

Ráðherra sagði að ekki þyrfti að fara í grafgötur með það hvaða þýðingu það hefur að færa svona verkefni út á landsbyggðina ekki hvað síst fyrir suðurkjördæmið þar sem flest þessi störf verða og þau eiga hvergi betur heima en þar sem starfsemin fer fram.

Að lokum óskaði ráðherra heimamönnum, Þórði Ásgeirssyni og Fiskistofu allri til hamingju með þetta nýja útibú og þakkaði fyrir hvað hér væri vel að verki staðið og vandaðan undirbúning verksins og lýsti útibúið á Hornafirði opnað.

Árni Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar lýsti ánægju sinni og bæjarfélagsins með komu Fiskistofu til Hornafjarðar og sagði m.a. að opnun útibúsins yki enn frekar á þá bjartsýni sem hér ríkir og það að hafa störf á vegum Fiskistofu hér styrkir stoðirnar undir okkar samfélagi. Það er gleðiefni þegar ríkisstjórnin tekur ákvörðun um að færa störf út á land og þessi starfsemi á eftir að hafa mikil og jákvæð áhrif á okkar samfélag.



Starfsmenn Fiskistofu á Hornafirði eru, Sævar Guðmundsson forstöðumaður útibús og veiðieftirlitsmennirnir Þórbergur Torfason og Ólafur Vilhjálmsson.

Hótel Höfn sá um veitingar við opnun útibúsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica