Nóvember
Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum
Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum
Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum (@Ragnar Frank)
Mynd 1 af 2
1 2

21.11.2006 Nóvember

Heimsmeistari í jöklamælingu

Fylgst hefur verið með breytingum á skriði jökla í Öræfum og hopi og sporðar þeirra mældir árlega frá ca. 1925 og að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings hjá Orkustofnun hefur einn Öræfingur gert slíkar mælingar 60 sinnum en Oddur tekur saman upplýsingar frá jöklamælingamönnum fyrir Jöklarannsóknarfélag Íslands. Þessi Öræfingur er Guðlaugur Gunnarsson frá Svínafelli í Öræfum sem hóf að mæla og skrá breytingar á jöklunum í Öræfasveit fyrir 60 árum og hefur gert það á hverju hausti síðan, það eru því mestar líkur á að hann sé orðinn heimsmeistari í jöklamælingum. Guðlaugur segist hafa notið aðstoðar Ragnars Frank í Skaftafelli við mælingarnar undanfarin 7 ár og hvað mest í haust því sjónin sé orðin svo léleg og hér með sé hann endanlega hættur þessu og nú geti Ragnar séð um þetta næstu 60 árin. Guðlaugur sem hóf þessar mælingar 1946 man tímana tvenna og á hans uppvaxtarárum í Svínafelli voru jöklarnir miklu stærri og árnar ógnuðu byggðinni.

Ragnar segir útkomuna á mælingum núna vera þá að Svínafellsjökull hafi skriðið fram um 4 m en í fyrra hafði hann hopað 25 m.

Skaftafellsjökull hefur hopað 27 m. í ár eftir algjört metár 2005 þegar hann hopaði 97 m. en eðlileg hop telst vera 10-30 m á ári. Falljökull sem er við hliðina á Virkisjökli, hopar núna um 34 m en 2005 um 9 m. Virkisjökull lækkar allur og þar er kominn nýr árfarvegur og allt öðruvísi landslag en var þar í fyrra.
Ragnar hefur fylgst með breytingum á Skeiðarárjökli og mælt hann á þrem stöðum þ.e. austurhluta jökulsins, við Núpsvötn og við Gígju. Vesturhluti jökulsins hefur hopað mikið og styttist hann um 50-100 m á ári og veldur bráðnunin hlaupum sem oft koma úr Grænalóni. Árfarvegir þarna eru að breytast og ekki mun langt að bíða þess að Súla flytji sig yfir í farveg Gígju. Miklar breytingar eru við Sæluhúsavatn þar sem jökullinn hopaði 22 m í fyrra og 6 m á þessu ári. Breytingar á jöklinum við Jökulfell eru þær að hann lengdist um 6 m í ár en hopaði 13 m 2005. Ragnar segir aðalbreytinguna á svæðinu vera þá að Skeiðará sé að færa sig vestar og stór lón myndast framan við jökulinn sem heldur áfram að lækka ár frá ári.

Búið er að fjarlægja brúna sem var yfir þurrum farvegi þar sem Blautkvísl á Skeiðarársandi rann áður fyrr og verður brúin notuð sem bráðabrigðabrú einhversstaðar í Hrunamannahreppi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica