Nóvember
Opinn fundur og skemmtikvöld á Hótel Höfn
Bjarni Harðarson, blaðamaður og bóksali á Selfossi, boðar til opins fundar og skemmtikvölds á Hótel Höfn í kvöld. Með Bjarna í för verður leikkonan og skemmtikrafturinn Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Bjarni stefnir á 2. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum en á fundinum mun Bjarni meðal annars endurskilgreina á léttum nótum íslenska fjórflokkakerfið. Ólafía Hrönn mun skemmta gestum með söng og gamanmálum.
Fundurinn og skemmtikvöldið hefst klukkan 20:30 og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir.





Skrifa athugasemd