Nóvember
Bilun í IPgátt Símans á Höfn
Vegna bilunar á Ipgátt Símans á Höfn þá hafa fjölmörg fyrirtæki og stofnanir á Hornafirði verið sambandslaus við Internetið. Bilunar varð vart um tvö-leitið í nótt og í framhaldi af því var keyrt af stað með varahlut frá Reykjavík. Bilun þessi hefur áhrif á þau fyrirtæki sem eru tengd við IPgátt Símans og eru það m.a. Ráðhúsið, Nýheimar, Grunnskólarnir, leikskólarnir, Heilbrigðisstofnun, Vís, Nýheimar, Hótel Höfn, Vélsmiðja Hornafjarðar, Vegagerðin, Flugturninn, Sparisjóðurinn og Landsbankinn.
Von er á að viðgerð ljúki mjög fljótlega (Viðgerð lauk fyrir hádegi 29.11.2006).





Skrifa athugasemd