Mikið um að vera hjá Hafnarskóla á fullveldisdeginum
Í dag var mikið um að vera í skólanum. hafnarskóli hélt upp á fullveldisdaginn eins og venja er, fengu góðar gjafir og fóru út að boða í hádeginu. Elín Sigríður Harðardóttir gaf hafnarskóla jurtasafnið sitt sem á örugglega eftir að nýtast vel í skólanum þegar nemendur eru í jurtavinnu bæði á vorin og haustin. Þetta er jurtasafn sem hún tók saman þegar hún var við nám í Garðyrkjuskólanum. Lionsklúbbur Hornafjarðar færði skólanum 100.000 kr að gjöf sem nota á til bókakaupa á bókasafnið og kom sú gjöf sér einstaklega vel fyrir skólann. Það voru þeir Steini í Bjarnanesi og Sigurður Guðmundsson sem komu fyrir hönd Lions og afhentu gjöfina.
Að lokum bauð bæjarstjórn Hornafjarðar nemendum og kennurum upp á Hótel í pizzu og gos í hádeginu þar sem Stefán Ólafsson ávarpaði skólann fyrir hönd bæjarstjórnar. Þetta var nú aldeilis skemmtilegur dagur eins og sjá má á myndum.





Skrifa athugasemd