Desember
Amnesty-brefamaraton
Amnesty-brefamaraton

08.12.2006 Desember

Amnesty bréfamaraþon á Höfn og í Reykjavík

Sunnudaginn 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadaginn, heldur Íslandsdeild Amnesty International bréfamaraþon á Höfn og í Reykjavík. Maraþonið felst í því að þeir sem mæta skirfa bréf til þolenda mannréttindabrota víða um heim og geta þau bréf eða kort haft áhrif á öryggi einstaklingsins sem sem er í fangelsi yfir hátíðina. Þetta er í annað skipti sem slíkt maraþon er haldið en í fyrra þá var það eingöngu haldið í Reykjavík og að sögn Júlíönnu Sveinsdóttur sem stendur fyrir þessu hér í Sveitarfélagiinu þá myndaðist mjög góð stemning í Reykjavík og voru send um 300-400 hundruð jólakort til þolenda mannréttindabrota um heim allan. Samtímis brégamaraþon á Höfn og í Reykjavík munu fara fram bréfamaraþon í Amnesty-deildum víða um heim.

Ekki er gert ráð fyrir að fólk búi yfir tungumálakunnáttu eða sé þjálfað í bréfaskrifum. Fólk getur komið og fengið leiðsögn, einnig tekið börnin sín með ef það vill, og þau geta teiknað á póstkort. Þátttakan er að sjálfsögðu ókeypis. Sem og kortin og frímerkin. Maraþonið hefst kl.12 á Kaffihorninu og stendur til kl. 18. Opið verður fyrir kaffi- og kökusölu á Kafihorninu. Þetta verður tilvalið tækifæri til að taka sér smá stund á aðventunni frá jólaösinni til að rétta öðrum hjálparhönd.

Sjá nánar Amnesty.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica