Friðarloginn frá Betlehem á Höfn
Síðast laugardag komu til Hafnar þrír skátar sem voru á ferð sinni um landið með friðarlogann frá Betlihem. Friðarloginn kynntur á litlujólunum í Hafnarskóla í vikunni og á stofujólunum var kveikt var á yfir 100 kertum og að sögn Þórgunnar skólastjóra var þetta mjög hátíðleg stund. Þeir sem vilja nálgast friðarlogann geta gert það hjá Luciu Hlíðartúni 23 eða hjá Bróa í Hafnarkirkju á Þorláksmessu. Til þess að sækja logann þá þarf viðkomandi að hafa með sér lukt eða lokað ljós. Loginn hefur verið verður boðinn þeim sem á vegi skátanna verða eins og gert hefur verið síðastliðin fimm ár. Skátarnir hafa stoppað á helstu þéttbýlisstöðum landsins og var skipulögð móttaka á mörgum stöðum um landið Endir friðargöngunnar var í friðargöngunni í Reykjarvík.
Hjá skátahreyfingunni kemur fram að mikil ánægja var með þetta framtak, enda ekki algengt að ungt fólk taki sér tíma í jólaösinni til að breiða út friðarboðskap. Eftir þessa ferð hefur þeim fjölgað til muna sem hafa fengið logann í sínar hendur.





Skrifa athugasemd