Best-Fiskur bauð uppá humarsúpu á Þrettándanum
Best-Fiskur fagnaði þrettánda dag jóla með því að bjóða uppá gómsæta humarsúpu og brauð frá kl.11-15 í matsal fyrirtækisins.Góð tilbreyting eftir allt kjötátið um hátíðarnar og fólk kunni greinilega vel að meta þessa nýbreytni og var hvert sæti í salnum setið þegar fréttamaður vefsins leit þar inn. Meðal þeirra sem þar voru var þorrablótsnefndin 2007 og gaf hún kokkunum þeim Sívari Árna framkvæmdastjóra og Guðjóni Magnússyni aðstoðarmanni hans góð meðmæli fyrir súpuna og framtakið, sögðu þetta frábært og höfðu orð á að hér væri ýmislegt sem þorrablótsnefnd gæti nýtt sér, hvað svo sem það nú þýðir. Um 150 manns komu í humarsúpuna svo að nóg var að gera hjá matreiðslumönnunum í Best-Fiski en þeim til halds og trausts við matreiðsluna var Gísli Már Vilhjálmsson á Hótel Höfn.
Á neðri hæðinni er Best-Fiskbúðin og þar seldu þær Hildur Ýr og Yrsa Ír úrvals saltfisk ásamt fleiri fisktegundum. Fiskbúðin verður opin á mánudögum kl.13.00-12.00 og 13.00-1700.





Skrifa athugasemd