Námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja haldið í Nýheimum
Impra nýsköpunarmiðstöð gengst nú í áttunda sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni og verður eitt slíkt haldið í Nýheimum og hefst það helgina 10.-11. febrúar n.k Eftir það verður kennt einu sinni í viku, á miðvikudögum, kl. 12:30-17:00, frá febrúar og fram í maí (alls 14 skipti). Mjög mikilvægur þáttur í námskeiðsskipulaginu er að þátttakendur hafa aðgang að leiðbeinanda á staðnum milli kennslustunda. Á námskeiðinu mun Rannveig Einarsdóttir taka þetta hlutverk að sér. Námskeiðin eru skipulögð í samvinnu við ýmsa aðila í Sveitarfélaginu m.a. Ara Þorsteins í Frumkvöðlasetrinu og Ragnhildi Jóns í Þekkingarneti Austurlands.
Alls hafa á sjötta hundrað konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi. Brautargengi er 75 kennslustunda námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja. Meðal markmiða námskeiðsins eru að nemendur öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að stofnun og rekstri fyrirtækja, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun. Einnig öðlast nemendur tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur. Kennsla mun að þessu sinni fara fram á stöðunum þremur en einnig (í minnihluta tilvika) gegnum fjarfundabúnað.
Lögð verður áhersla á að kennarar hafi reynslu og þekkingu af atvinnulífinu og miðli hagnýtri þekkingu til nemenda. Þátttakendur fá einnig handleiðslu hjá starfsmönnum Impru og hjá leiðbeinanda á hverjum stað á milli kennslustunda.
Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd. Einu inntökuskilyrðin eru að þátttakendur hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, séu að hefja rekstur eða séu nú þegar í rekstri. Einnig þurfa þátttakendur að skuldbinda stig til þess að vinna að gerð viðskiptaáætlunar sinnar í heimavinnu minnst 10 klst. á viku.
Boðið hefur verið upp á Brautargengisnámskeið reglulega í Reykjavík síðan 1996 en á árinu 2003 var í fyrsta sinn boðið upp á námskeiðið á landsbyggðinni. Uppbygging námsins á landsbyggðinni er sú sama og á höfuðborgarsvæðinu. Notað er sama námsefni og er námskeiðið sambærilegt að öllu leyti. Á sjötta hundrað konur hafa lokið Brautargengisnámi frá upphafi, þar af 153 á landsbyggðinni. Samkvæmt könnun sem gerð var á árinu 2005 er um helmingur kvenna sem tekið hafa þátt í námskeiðinu frá upphafi nú með fyrirtæki í rekstri. Flest fyrirtækjanna eru með einn til tvo starfsmenn, en meðalfjöldi starfsmanna er níu. Eftirgrennslan hefur ennfremur leitt í ljós að einungis ein af hverjum 10 konum hefur alfarið lagt á hilluna öll áform um fyrirtækjarekstur. Þó ekki hafi allar hafið rekstur eru margar enn að vinna að undirbúningi sinna viðskiptahugmynda.
Námskeiðið er í umsjón Arnheiðar Jóhannsdóttur og Elínar Aradóttur, verkefnisstjóra hjá Impru á Akureyri. Námskeiðsgjald er 38.000,- kr. á hvern nemenda, en algengt er að stéttarfélög hafi tekið þátt í greiðslu námskeiðskostnaðar. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Impru (www.impra.is), en einnig er hægt að hafa samband við verkefnisstjóra með tölvupósti (elina@iti.is) eða hringja í síma 460 7970. Umsóknarfrestur er til 26. janúar 2007.





Skrifa athugasemd