Samkomulag um að kaupa innréttingar 11-11 í Miðbæ
Náðst hefur samkomulag milli Samkaupa Suðurnesja-Nettó og Kaupáss um að Samkaup- Nettó kaupi allar innréttingar í 11-11 versluninni í Miðbæ. Það er búið að leysa þetta mál milli fyrirtækjanna sagði Sturla Eðvarðsson hjá Samkaupum og það er fyrir mestu að íbúar á Hornafirði séu öruggir með matvöruverslun. Við tökum við húsinu fyrsta mars og reynum að opna þarna sem fyrst með eins litlum breytingum og hægt er til að byrja með, svo komum við til með að skoða stöðuna í rólegheitum og fara yfir hana og þá væntanlega gera stærri breytingar seinna á árinu. Við lágmörkum eins og hægt er þann tíma sem kannski verði lokað við skiptin og á meðan munum við sjá um að fólk geti fengið matvöru.
Við komum austur fljótlega og hittum þá starfsfólkið þarna og göngum frá ráðningu starfsfólks í verslunina sagði Sturla og hann sagðist leggja áherslu að fá heimafólk til starfa.





Skrifa athugasemd